Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum. Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd.
Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína. Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu.

Það má segja að laumast þarna inn ótrúlega fersk og jafnvel frumleg nálgun að ‘origin’ sögu, miklu óhefðbundnari og tenntari sem slík heldur en t.d. Batman Begins – með fullri virðingu fyrir þeirri mynd. Persónuboginn gengur ekki út á formúlubundna upprisu til hetjudáða, heldur snýst hann hér allur um það hvernig Wayne lærir að draga persónulegu djöfla sína úr myndinni, breyta markmiðum sínum og stuðla að einhverju stærra; að verða að hvetjandi tákni en ekki efla óttann til að lemja sultuna úr glæpamönnum og verða í grunninn litlu skárri en þeir – jafnvel þó hann telji sig trú um annað með því að neita að drepa fólk. Eins og fram kemur, ef hann heldur áfram að ala ímynd sína á reiði fer hann þá bara enn fremur að speglast við gátumennið Riddler, sem keyrir á linnulausri refsingu. Og í akkúrat þessu samhengi er sá skúrkur fullkomlega kjörinn sem stærsta ógnin í þessari tilteknu frásögn. Þarna gefst líka svigrúm fyrir vandvirka fagmanninn Matt Reeves til að efla hlið þessa karakters með áherslu á það sem hefur verið sárlega fjarverandi eða ábótavant í fyrri bíótúlkunum; Batman í fullum gír sem einkaspæjari.
En aftur, þar sem hérna er notast við nálgun þar sem Bruce Wayne er enn tiltölulega óreyndur og óslípaður í ástríðu/þráhyggju sinni sem myrkur riddari Gotham-borgar, er spæjarinn í honum langt frá því að vera framúrskarandi eða fullkominn. En það gerir söguþráðinn og karakterörkina ekkert minna grípandi. Og burtséð frá persónu- eða gildistengdum göllum, þá vantar það svo sannarlega ekki að Batman hefur í rauninni aldrei verið svona kvikindislega svalur, flókinn eða trúverðugur í bíómynd áður fyrr. Það er eins og allar hinar Batman-myndirnar hafi gengið svo þessi gæti flogið.
Það er frekar galið hvað Reeves hefur náð að tálga glæsilega múdí og lágstemmda, tæplega þriggja klukkustunda epík þar sem aldrei vantar ástríðuna í hverja senubyggingu og allt gegnir efnislega sínum tilgangi. Reeves er bersýnilega undir áhrifum Fincher-myndanna Zodiac og Se7en en öll úrvinnslan nær að pakkast saman í skuggalegan, hálf subbulegan, raunsæjan tón með andrúmslofti sem er tens, kalt og grípandi. Leikstjórnin hjá Reeves og meðhöndlun hans á myglulegum, gotneskum alvarleika (en að sama skapi er heppilega nóg rými til að salta sprækum húmor inn í stemninguna annað slagið) helst meiriháttar vel saman og þá sérstaklega í ljósi þess að persónurnar, ráðgátan, spurningarnar, siðferðisklemmurnar og svigrúm söguframvindunnar hefur allan forgang fram yfir tilefnislausan hasar, óþarfa stigmögnun, æpandi ‘exposition’ eða ærslafulla kaótík til að halda óþreyjufullum áhorfandanum límdum.

Að flestu leyti er The Batman temmilegt frávik og jafnframt mikil andstæða við hasarblaðamynd sem fyllir í tékkboxin til að ná til eins margra áhorfenda og hún getur. Reeves er alveg skammarlaust að ríghalda í sína nálgun með framúrskarandi árangri þar sem margt smátt safnast hægt og bítandi í tröllvaxna heild sem gefur spennandi, þrívíða mynd af Batman, áferðarríkri Gotham-borginni og tilheyrandi tíðaranda. Það er nóg pláss þarna líka fyrir sjónarspil, öflugan hasar þegar handritið kallar eftir slíku, en þemun, dýnamík karaktera og margbrotna plottið rígheldur í mannlega þáttinn. Að þessu ógleymdu verður gott fjórfalt betra með tónlistinni frá Michael Giacchino, tónlistarmótífum hans fyrir ólíka karaktera og ríkjandi orgelglamri sem innsiglar óaðfinnanlega drungann, sultuslöku tilburðina, þolinmæðina, sálfræðilegu komplexana og óútreiknanlegu sturlunina sem fylgir þessum tiltekna Batman. Giacchino var nú þegar með fjölbreyttari og áreiðanlegri tónskáldum sinnar kynslóðar í Hollywood, en færa má rök fyrir að score’ið hans í The Batman sé á meðal hans hærri hápunkta á ferlinum hingað til. Tónlistin á skuldlaust þátt í því að gefa myndinni sinn firnasterka heildarsvip, með listilegri aðstoð kvikmyndatökunnar hjá Greig Fraser, vissulega.
Þegar hasarblaðahetjur eru gæddar lífi í bíómyndum skiptir tónn oftar en ekki höfuðmáli, og fyrir þennan tiltekna stíl er Robert Pattinson rétt um bil fullkominn Batman. Frammistaða hans græðir líka beinleiðis á sterkri og flottri búningahönnun, og þetta er sennilega fyrsta skiptið í öllum samanlögðum Batman-myndunum þar sem búningurinn er óaðfinnanlega trúverðugur; einfaldur í sniði, ekki of fyrirferðamikill og er það er heldur ekki erfitt að kaupa það að einn maður geti smeygt sér í hann á svipstundu frekar en óséð framleiðsluteymi sem aðstoðar leikarann að koma sér í ópraktískan búning þar sem erfitt er að hreyfa höfuðið og búkinn. Enn fremur gefur það ekki augaleið að leikaranum finnist greinilega óþægilegt að klæðast honum, ef hugsað er t.d. hvað Christian Bale var oft með kjaftinn opinn undir grímunni sökum þess að ná varla að anda út um nefið. Röddin hjá Pattinson verður líka aldrei of háfleyg. Hönnun búningsins í þessari mynd er líka slík að það er auðvelt að kaupa þennan Batman á endalausu vappi og í slagsmálasenum, frekar en að leikstjórinn þurfi að vinna í kringum allt slíkt í klippiherberginu eða með kamerutrixum.

Það er grjótharður nagli í frammistöðu Pattinsons þar sem krafist er þess að hann sé bæði tilfinningalega afmarkaður en þó ekki alfarið laus við mannúðina. Það verður líka að segjast að Pattinson kemur merkilega miklu til skila með augnsvipum, og er þetta trúlega svipbrigðasterkasta Blakan sem hefur sést. Þar fyrir utan er Pattinson töluvert meira í búningnum á skjánum heldur en ekki, en auk þess tekst honum einkennilega vel að selja hugmyndina um sérvitring sem vakir allar nætur, með lítið líf utan málstaðsins, og hæfilega sjúskaður vegna þess.
Aukaleikarar fylla flekklaust í karaktersúpuna í kringum Batman. Jeffrey Wright er þrusugóður sem James Gordon og ánægjulegt er að sjá hvað þeirra samspil og samstarf í rannsóknarerindum hefur mikið vægi í þessari sögu. Zoë Kravitz hefur geislandi viðveru sem Selina Kyle og kveikir stöku sinnum í skjánum með lokkandi en breysku töktum sínum. Síðan er Colin Farrell alveg í heljarinnar stuði sem Penguin undir masterklassa förðunargervi, John Turturro sóar ekki ramma með hnífbeittum Carmine Falcone og Andy Serkis er lúmskt sterkur Alfred sem nýtir sinn litla skjátíma til hins ítrasta. Paul Dano er einnig mátulega minnisstæður sem krassandi, bölbrotinn og stöku sinnum ógeðfelldur Riddler og á það sameiginlegt með Pattinson að sjást lítið án grímunnar sinnar, sem setur meiri kröfu á dulúð og ógnareðli persónunnar. Dano fær í raun það hlutverk að vera enn myrkari hliðstæða Pattinsons, fígúra sem gengur með eigin grímu til að geta hispurslaust leikið lausum hala og öðlast frelsi með sínum eigin metnaðarfulla málstað. Í tengslum við karakterinn sjálfan er Riddler ekkert mikið síðri í ógn og geggjun og Jókerinn hjá Heath Ledger. Vissulega eru stílarnir gerólíkir en Riddler er stórkostlegur og sérvitur skúrkur sem á alveg erindi í sömu umræðu.

Það er ekkert grín að viðhalda fúnkerandi flæði í þriggja tíma glæpatrylli og efnislega tekst það meiriháttar vel með þessari mynd. Á móti er rennslið svo sérsniðið og óhefðbundið að það er alveg 1000% bókað að myndin hafi þveröfug áhrif á næsta mann og virki einfaldlega hrútleiðinleg, ef ekki óviðburðartík. En þá snýr þetta svolítið að því hvað viðkomandi vill helst fá út úr sinni Batman-mynd, og ef spæjara-horror-þriller nálgunin gengur ekki upp, þá er nóg um aðrar Batman bragðtegundir að finna. Undirritaður gjörsamlega elskaði þessa mynd frá byrjun til enda og hélt hún meiriháttar takti sem púlsast upp með stórkostlegum krafti annað slagið, til dæmis með kyngimögnuðum klæmax-kafla þar sem allt fer til fjandans eða bílaeltingarleik sem er ekkert annað en bombandi snilld í krafti og (bókstaflegri) keyrslu. Ef það er eitthvað sem dregur The Batman niður um punkta, væri það líklegast þvinguð innkoma ‘gestaleikara’ í lokin (og heimurinn hefði svo sem bara gott af því að hvíla þennan karakter í einhvern árafjölda) og circa hálftímalangur útúrdúr upp úr miðbikinu þar sem Riddler týnist hálfpartinn úr sögunni og minniháttar þráður með Turturro tekur við. Æskilegra hefði verið að vafra meira á milli þessara umfjöllunarpunkta, en það eru bara smotterís-hlutir sem draga afar lítið úr heildarupplifunni eða stærri sigrunum þegar allt er ofantalið.
The Batman er stórlega frískandi andblær í flokki hasarblaða- og ofurhetjumynda sem gælir reglulega við einsleitni og litla áhættusækni. Það má lengi deila um hvort The Dark Knight tróni enn á toppnum sem besta ‘myndin með Batman’ sem gerð hefur verið, en það er ótvírætt þó að þessi stílíski, melankólíski grimmdar-ópus frá Reeves er án efa betri ‘Batman myndin’.







































































































































































































