Bíófíklar setja sig í Hrekkjavökustellingar og ræða eina af betri myndum Davids Cronenberg í þaula. Hryllingsmyndin The Fly með Jeff Goldblum og Geenu Davis er allmörgum kunnug en mögulega gæti annað átt við um þá mörgu staðreyndarmola sem henni fylgja.
Við Kjartan, Atli Freyr og Frikki búum okkur undir ógeðið og skiptast á að lofsyngja þessa vönduðu en sögulega ógeðslegu bíómynd. Hlustandi er í klessu hvattur til að njóta með og fræðast meira um þennan fræga harmleik, sem er í senn fullkomlega gilt dæmi um að endurgerðir þurfi ekki að vera alltaf af hinu slæma.



Leave a Reply