Oft er betra að veðja á Black. Þegar kemur að kjaftforum karakterum, kostulegum hasar og ruglaðri framvindu sem spila með væntingar áhorfenda, er yfirleitt hægt að reiða á hinn þrælskemmtilega Shane Black.
The Nice Guys er (ó)umdeilanlega á meðal hans betri mynda en þarna fara þeir Ryan Gosling og Russell Crowe tvímælalaust á kostum og sýna jafnvel sínar bestu hliðar. Kómík og kaos er að minnsta kosti allsráðandi ásamt fjölda frasa og uppákoma sem endalaust er hægt að vitna í… allavega að mati þeirra sárafáu sem hafa séð myndina.
The Nice Guys lenti ekki beinlínis með miklum vinsældarhvelli á sínum tíma – þvert á móti endaði hún í töluverðu tapi – en hefur seglað til sín dygga aðdáendur á undanförnum áratug.
Við Kjartan, Frikki fastagestur og Guðbjörg Marín (e. betri helmingur Frikka, réttara sagt) rifjum upp þessa ómótstæðilegu veislu af vitleysu þar sem harðsoðnar klisjur eru teknar í gegn með stöðugu sprelli í ólgandi ‘70s stíl. Sannkölluð “frasa-hasarmynd.”
Um að gera að leggja í hlustunina, hafa það næs og vera memm!



Leave a Reply