Afþreyingargildið vantar ekki en myndin virkar betur sem karaktersaga heldur en hasarmynd sem þarf að tikka í ákveðin box.


Nýr dagur, ný ‘endurræsing’ og í senn nýjar áherslur. Nú er Peter Parker kominn á bömmer. Sjálfsagt er það eðlileg afleiðing eftir að hafa óskað þess að allur heimurinn myndi gleyma honum, og þá ekki síst vinir hans og nánustu. Í lokin á No Way Home man enginn lengur eftir Parker, enn síður hver Köngulóarmaðurinn er á bak við grímuna. Þá tók við nýr kafli þar sem hann er fluttur í nýtt heimili, með nýjan búning, en að sinni einn og óstuddur að svara kalli sínu sem vingjarnlega hverfishetjan í New York-borg. En eins og sagan hefur margendurtekið sýnt, þá eru yfirleitt bestu Spider-Man sögurnar þessar sem setja fókusinn á Peter Parker þegar lífið hans er í steik og er takmörkuð spenna fólgin í því þegar hlutirnir ganga of vel hjá honum.

Spider-Man: Brand New Dayreynir að gera margt í einu, sem er reyndar löngu orðin fasta hefðin hjá Spider-Man framhaldsmyndum, og hún eyðir rosalegu púðri í að nýta þennan nýja óformlega byrjunarreit til að kasta út önglum fyrir framtíðarþróanir og möguleika Marvel Cinematic Universe myndanna. Heppilega er myndin samt ekki ofaukin eða með þann vanda að klessa tveimur bíómyndum eða fleiri saman í eina. Það er gegnumgangandi áhersla á einangrun, félagslega löngun, óskhyggju, fjarlægð, ónáttúrulega heilsubresti og angist Parkers á meðan hann glímir við nýjar dularfullar ógnir og óútreiknanlegar hættur. Hliðarsjálfið hans sem Köngulóarmaðurinn hefur yfirtekið allt lífið hans, og er í raun orðið að eins konar flótta hjá honum, og myndin skoðar forvitnilegar hliðar á togstreitu hans; hvernig jafnvægið á milli hetjunnar og einstaklingsins Peter Parker getur harmónerað saman. Ef það er þá hægt.

Það sést langar leiðir að Brand New Day nýtur góðs af einni tiltekinni áherslubreytingu sem aðskilur hana hressilega í stílbrögðum frá hinum þremur myndunum með Tom Holland í aðalhlutverkinu. Í fyrsta lagi er engin meiriháttar þörf að stækka umfangið enn eina ferðina og þrepa upp einhverja epík að óþörfu; en eftir að No Way Home tjaldaði eins miklu til og hún komst upp með, er þá merkilega vel þegið að heimurinn sé ekki allur í hættu og að lagt sé meira í það að persónulegir faktorar séu í húfi frekar en allt annað. Í öðru lagi er frábært að fá annan leikstjóra inn til að brytja upp á stemninguna eftir að Jon Watts sat við stjórnvölinn í hin þrjú skiptin. Nú er nýtt blóð tekið við og bara ágætis tilbreyting að fá Destin Daniel Cretton, sem á sér einnig indí-bakgrunn og rúllaði síðast ágætlega upp vanmetnu sólómyndinni um Shang-Chi.

Á annan veg er Cretton greinilega með sálina og karakterfókusinn í forgangi yfir hasar og tæknibrellur, en þar fyrir utan er einfaldlega miklu meira ‘cinematic’ bragur á Brand New Day – með töluvert meira líf í kamerunni – heldur en mætti segja um Jon Watts-myndirnar í tengslum við uppstillingar skota og sjónrænu dýnamíkina eins og hún leggur sig. Watts var vissulega flinkur á ýmsum sviðum, en það fer Cretton miklu betur að meðhöndla Marvel-veislu á stórum skala. Ljóst er allavega að annar hefur klárlega betra augað fyrir svona verkefni heldur en hinn.

Brand New Day virkar best í litlu mómentunum þar sem leikararnir fá að eigna sér senurnar eða rammana án þess að annað þurfi að þvælast fyrir. Aftur á móti snýst þessi bíómynd um að finna ákveðið jafnvægi á milli mannlega hlutans og ofurhetjustælana og það er eiginlega lykilatriði í sjálfu sér að góð Spider-Man mynd tileinki sér sama balans. Það er einmitt í hasar- eða ofurhetjuhlutanum þar sem Brand New Day missir yfirleitt marks. Hasarinn er sparsamur og yfirleitt innantómur, sama hve mikið er í hann lagt. Tæknibrellur eru sömuleiðis ótrúlega misjafnar og stundum er eins og heilu deildirnar í þeim málum hafi fallið á tíma.

Betri myndirnar í sívaxandi lengju Spider-Man bíómynda hafa yfirleitt náð að vera stórskemmtilegar, gæddar mikilli sál en jafnframt boðið upp á smávegis auka sem aðskilur þær frá því að vera býsna ‘basic Marvel-myndir’ sem eru umframt allt ætlaðar börnum og unglingum. Það er ekki að ástæðulausu að Spider-Man 2 frá Sam Raimi eða hinar ólgandi fersku Spider-Verse myndir eru oftar en ekki séðar sem dæmi um hápunkta þegar kemur að þessari hetju. Varðandi Brand New Day er umdeilanlega fullmikið verið að tékka í box með því að skjóta inn gestarullum og vendingum sem hafa furðulega lítil áhrif á heildarmyndina. Til dæmis hefði alveg verið hægt að sleppa Hulk alfarið úr þessari mynd án þess að það hefði bitnað neitt á aðalsögunni. Nema hvað, krakkarnir elska Hulk, svo það tikkar í ákveðin sölubox. Þess að auki er engin úrlausn á plottinu með ‘breytingaskeið’ Parkers, sem étur upp stóran hluta af atburðarásinni.

Þessi mynd leggur líka aðeins of mikið í fyrirsjáanlega ráðgátu sem skilar af sér fínum boðskap en einnig óeftirminnilegu illmenni. Á móti var það stórkostleg ákvörðun að para Peter Parker saman við Frank Castle/The Punisher í þessari umferð. Parker sér yfirleitt það jákvæða í fólki á meðan Castle er þveröfugur í sínu sjónarmiði, sem skapar fyndna andstæðustemningu sem söguframvindan hefði mátt gera meira við. Jon Bernthal er líka frábær í samleik sínum við Holland og ekki er ólíklegt að vinátta leikaranna í raun hafi spilað inn í þá kemistríu. Aðrir leikarar koma og fara án þess að hafa mikið til að vinna með. Zendaya fær nokkrar góðar senur en það er í rauninni Sadie Sink sem mest fær að spreyta sig í aftari hluta myndarinnar jafnt og innsigla sálina í sögunni. Annars er greinilegt að Holland sé þarna upp á sitt besta og skilar því prýðilega að dýpka söguhetjuna sem hann er alveg búinn að tileinka sér. Holland er auðvitað löngu búinn að slá skjátímamet allra sem hafa áður leikið hann, og það kristallast hér hvað leikarinn getur brillerað innan ákveðinna þægindaramma. Í samanburði við eitthvað eins og frammistöðu hans í The Odyssey er nokkuð ljóst að hann hefur ekki enn brotist út fyrir þessa ramma. Þó hann geri það eflaust einn daginn.

Spider-Man: Brand New Day er merkileg handaglíma á milli nokkurra af bestu atriðunum og þemunum sem hingað til hafa brugðið fyrir í leikinni mynd um Köngulóarmanninn og jafnframt ótrúlega staðlaðrar ofurhetjumyndar sem er uppfull af afleiðingarlausum vendingum og hasaratriðum þar sem ýmist vantar upp á púlsinn. Eins og með svo margar MCU-myndir er hluti af markmiðinu að leggja forvitnilega teina fyrir komandi ævintýri, og það gerir þessi mynd ágætlega. En þegar glittir síðan í eitthvað bitastæðara verður örlítið leitt að öll myndin hafi ekki kjarkinn eða áhættuna í sér að viðhalda þeim dampi. Hún sveiflar misjafnlega hátt en heldur að minnsta kosti þokkalegu flæði í afþreyingargildinu á þessum vægast sagt örlátu 145 mínútum.

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading