Twilight-serían var aldeilis barn síns tíma sem óumdeilanlega virðist hafa fengið einhverja létta endurvakningu hjá yngri kynslóðinni. Í áraraðir hefur verið réttilega gert stólpagrín að rauðu flöggum þessara sagna úr smiðju Stephenie Meyer, en því verður ekki neitað að við fengum fjölmargt gefandi úr þessu fyrirbæri líka.
Íris Árnadóttir er sest niður með undirrituðum ásamt (talandi um börn tíma síns…) elstu dóttur hans, Emmu Lilju Rizzo, sem átti hugmyndina að stökkva þessari seríu örlítið til varnar.
Þá ræða þau þrjú jákvæðari(…ish) og langlífari þættina við þessa stórfrægu kvikmynd sem fylgir fyrirbærinu sem lengi vel var og hefur verið vinsælt að hata.



Leave a Reply