Friðrik Önfjörð skoraði á Kjartan til að horfa á þessa umræðuverðu leikstjórafrumraun frá Ari Aster sem naut gífurlegra vinsælda á sínum tíma en hefur lengi vel skipt fólki í fylkingar, hvað gæði og hrylling varðar. Leiksigurinn hjá Toni Collette er vissulega ótvíræður og flestir geta verið sammála um almenn óþægindin í Hereditary, en hvað með allt hitt?
Ólíkar upplifanir okkar Frikka og Kjartans um myndina ber með sér skrautlega niðurstöðu sem ber að hlera.
Ath. Öll umræðan inniheldur spilla – og nokkra gleðispilla.



Leave a Reply