Spennuþriller
-
Ein leið til að rotna úr leiðindum og líða skítugum á sama tíma; að horfa á Citizen Vigilante.
-
Metnaðurinn er óumdeilanlegur og ástríðan skín öll í gegnum þetta blendna ferðalag. Myndin sveiflast í allar áttir með alvarlega farsann.
-
Obsession er alveg meiriháttar klikkuð ef ekki dáleiðandi og mátulega kómísk skemmtun sem leynir slatta á sér.
-
Fínasti hrollur, en hvar er múmíumyndin mín!?
-
Þegar horft er til baka hefði trúlega bara verið sterkari leikur að leyfa seríunni að deyja eftir að Wes kvaddi.
-
Helstu skilaboðin eru frekar augljós og yfirdrifin, en nóg er samt hérna til að kjamsa á þegar framvindan er svona steikt, ófyrirsjáanleg og klækjótt.
-
Sprellifandi, klók og júník pólitísk satíra, drifin af þrususpennandi hlaupagangi, eltingarleikjum, hvassri ádeilu, athyglisverðum persónuþróunum og einkennilega kómískri stemningu.
-
Það sem við fyrstu sýn gæti litið út fyrir að vera enn eina ‘slasher-á-draumaeyju’ bíómyndin leynir djöfulsins slatta á sér.
-
Þetta er mynd um anti-ameríska drauminn og kemur núll á óvart að Guillermo Del Toro hafi lagt í enn eitt sjónræna meistarastykkið.
-
Afþreying er kjarnaorðið hér á bæ þar sem Trap er fyrst og fremst beinskeyttur spennutryllir með bráðaofnæmi fyrir lógík og almennri skynsemi.
-
Það er ekkert grín að sjóða svona listilega saman bulli, brútalisma og nánd, hvað þá með svona púlsi og afþreyingargildi.
-
Forvitnilegur yfirnáttúrulegur morðgátutryllir og leynir miklu meira á sér en óviðburðarríka yfirborðið sýnir við fyrstu.
-
Eiðurinn stendur betri verkum Baltasars nokkuð að baki og skilur í heildina ekki mikið eftir sig, en hún er faglega gerð og mátulega spennandi.
-
Meiri tennur, tilraunasemi og klassi er kominn í leikstjórann aftur og skilar það af sér tignarlegri samsuðu af klínískum dramatrylli og tens karakterstúdíu.
-
Það er eitthvað um kjánahrollinn í drungahrollinum en afþreyingargildið heldur sér.
-
Mögnuð, áferðarmikil og stílísk nálgun á efninu og fullkomlega trúverðugur, sjúskaður og sturlaður vinkill á brjálæðislega svölum spæjara-Batman.
-
„Hvernig er staðan? Er eitthvað að gerast?“ spyrja persónur Undir halastjörnu reglulega, en stutta svar áhorfandans má einfaldlega súmma upp með neitandi svip og ypptum öxlum.
-
Útlit er fyrir því að Dwayne Johnson hafi beðið um ‘Die Hard fyrir hálfvita.’
-
Með sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd sýnir Börkur Sigþórsson merki um þekkingu og örugg tök á frásögn og rennsli.




























































































































































































































