Across The Spider-Verse reynist vera fullkomlega á pari við forvera sinn og eiginlega ögn betri á mörgum sviðum. 

Miðjumyndir eru oft erfiðar. Það getur verið snúið að útfæra góða sögu sem þarf að komast yfir hindrunina að hafa hvorki byrjun né endi en án þess að það bitni á góðri persónusköpun og framvindan þarf að geta gripið og haldið athygli þó svo að flestir þræðirnir hangi í lausu lofti áður en kreditlistinn rúllar í lokin. En síðan eru uppstillingar líka gjarnan tímafrekar og endalok glíma heilmikið við þá pressu að ná fullnægjandi lendingu, sem þýðir að miðjukaflarnir geta stundum verið í aðstöðu þar sem mikið svigrúm er til að fíflast aðeins, tilraunast og fikta við myrkar hugmyndir eða alls konar gráa skugga. Pönkaralegi kostur margra miðjumynda er einmitt sá að þær mega og geta leyft sér að skilja áhorfandann eftir í miklu tilfinningalegu uppnámi, því oftast versnar dramað áður en hlutirnir batna. Þekktasta dæmið er sennilega The Empire Strikes Back, en af mörgum dæmum er að velja.

Across The Spider-Verse átti við tvær risastórar hindranir að glíma; í fyrsta lagi er hún framhald af frumlegustu, flottustu og skemmtilegustu Spider-Man myndinni til þessa, svo í öðru lagi er hún aðeins annar helmingurinn af stærri söguörk og þar af leiðandi hefur hún hvorki almennilegan klæmax né endi (og endar meira að segja á orðunum “To Be Continued…”). En einhverra hluta vegna og þvert gegn öllum eðlilegum lögmálum, eða réttar sagt með sterku handriti, botnlausu hugmyndaflugi, þrumandi hjarta á réttum stað, óvenjulega flæði sínu og alveg brillerandi súpu af margs konar trylltum teiknistílum, reynist Across The Spider-Verse vera fullkomlega á pari við forvera sinn og eiginlega ögn betri á mörgum sviðum. 

Líkt og síðast, enn bara með enn meiri stigmögnun, er fjölheima-konseptið tekið alla leið og lengra. Það er hvergi dauður né óspennandi rammi á þessum rammpökkuðu 140 mínútum en karakterdýpt, áferð stemningarinnar og mannlega viðtengjanlegt drama skiptir hefur sama forgang og allt þetta hlass af páskaeggjum, tilvísunum og marglaga einkabröndurum sem koma oft og fara á svipstundu. Því er sama og ómögulegt að nokkur áhorfandi geti tekið alla þessa sjónrænu veislu inn í einni setu, eða án möguleika á pásutakka. Myndin verður líka þeim mun meira poppandi út frá nálguninni að fara lengra með hugmyndina að aðgreina ólíka fjölheima sögunnar með mismunandi stílum. Tónlistin frá hinum endalaust vanmetna Daniel Pemberton heldur líka óaðfinnanlega utan um alla klessuna og er þar að auki gædd meira ‘úmf-i’ en í síðustu mynd.

Ævintýrin hjá Miles Morales, Gwen Stacy og félögum eru þyngri að sinni og myndin hefur þann lúxus að komast upp með hægara flæði en fyrri myndin, til að betur einblína á allan tilsettan núans og fleiri leiðir til að bragðbæta allt hið ýkta með trúverðugum kjarna persóna. Þó segjast verði að nærveru sumra fígúra fyrri myndarinnar sé saknað, t.d. Peni Parker, Spider-Ham og Spider-Man Noir, þá eru nýju karakterarnir engu síðri og í sjálfu sér hver öðrum dásamlegri. sérstaklega indverski Köngulóarmaðurinn Pavitr Prabhakar, Jess Drew og enn fremur senuþjófurinn Hobie Brown eða Spider-Punk (snilldarlega talsettur af Daniel Kaluuya).

Karakterar með dekkri skugga, þá aðallega þeir Miguel O’Hara/Spider-Man 2099 og andlitslausa skrípafígúran The Spot, eru ógleymanlegar viðbætur, og virðast ætla að spila enn mikilvægari rullu í næstu mynd. Hinn síðarnefndi er einstaklega skrautlegur skúrkur; oft talinn á meðal lummulegri andstæðinganna í Spider-Man myndasögum en Across The Spider-Verse spilar stórkostlega með ímynd hans með sjónrænni geggjun og óvæntum krafti þegar á líður. Því miður hverfur hann fullsnemma úr þessari mynd og hefði mátt gera ögn meira með hann í aftari helmingnum í stað þess að halda mystísku ógninni danglandi með loforði um að hann snúi aftur með enn meiri látum í lokahluta þessa þríleiks.

Það er samt nákvæmlega tvennt sem einkennir Across The Spider-Verse og aðskilur hana kostulega frá hinum týpískari ofurhetjumyndum ef ekki flestum MCU-myndum af færibandinu, jafnvel allflestum Spider-Man myndum; Hún er blessunarlega og stórfurðulega ófyrirsjáanleg og þar að auki lifandi listaverk, eða svo gott sem. Það er eiginlega frekar magnað hvað margar ofurhetjumyndir eru útlitslega einsleitar, flatar og stíllausar miðað við magn þeirra, fjöldaframleiðslu og hráefnin sem unnið er úr. Í akkúrat þessum efnum hafa þessar tvær Spider-Verse bíómyndir verið bæði ómetanlega grípandi til útlits, framúrskarandi í sjónarspili og stílbræðingum, auk þess að hámarka möguleika þess markmiðs að blása myndasögum til lífs á hvíta tjaldinu. Og framkvæma það af svona gígantískri ástríðu með tilliti til þemu og persóna. Það er einn tiltekinn eltingarleikur í þriðja act’i þessarar myndar (með óteljandi útgáfum af Köngulóarfólki… og… dýrum?!) sem er með því steiktasta og stórkostlegasta sem hægt er að ímynda sér að svona hasarblaðamynd geti boðið upp á. Það er varla hægt að horfa á þessa mynd án þess að hugsa hlýtt til þeirra fjölda artista sem fóru líklegast í bullandi kulnun við gerð hennar.

Ef þriðji hluti þessarar trílógíu reynist vera eitthvað minna en gjörsamlega brilliant, þá telst það til mikilla vonbrigða. Standardinn er hátt settur því ofurhetjusögur – teiknaðar eða leiknar – verða varla dýnamískari en þetta í bíóformi, og þessi tvenna sem blasir við í bili er hispurslaust eitthvað sem ber að fagna og horfa á með reglulegu millibili.

Þvílíka geðveikin. Hvílíkt bíóið.