Rauða myllan úr smiðju stílistans Baz Luhrmann hefur heillað og fælt frá margan einstaklinginn í gegnum tæpan fjórðung af öld. Sumir syngja, klappa, stappa og frussugrenja yfir rómantíkinni hjá bóhemanum Christian og gleðikonunni Satine á meðan aðrir fussa og sveia líkt og grautfúli Hertoginn sjálfur.
Sigga Clausen er aftur snúin í stúdíóið til okkar il að ræða þennan einstaka og geysivinsæla “glymskrattasöngleik”. Það var hennar frumkvæði að Bíófíklar myndu gægjast í þetta partý og svipast á bakvið rauðu tjöldin.
Þá er hlustandi hvattur til að staupa í sig Absinthe-skotið og sækja klútana. Þetta er hin eina sanna Moulin Rouge!



Leave a Reply