Fæðing kvikmyndarinnar var erfið, vægast sagt.

Grínmyndin Monty Python and the Holy Grail hefur í áratugaraðir verið talin á meðal bestu grínmynda fyrr og síðar. Hún kom út 1975 og var önnur leikna kvikmyndin í fullri lengd af fjórum frá grínhópnum Monty Python, með þeim John Cleese, Terry Jones, Michael Palin, Eric Idle og Graham Chapman innanborðs.

Fjármagnið kom úr óvæntri átt

Helga gral Monty Python er iðulega dregið fram þegar bestu grínmyndir sem gerðar hafa verið eru tíndar til og árið 2005 gat hún af sér hinn stórvinsæla söngleik Spamalot, sem fór á fjalir hér á landi í Þjóðleikhúsinu árið 2014.

Fæðing kvikmyndarinnar var hins vegar erfið, sökum undirfjármögnunar og erfiðra aðstæðna á tökustað og þurfti framleiðsluteymið að virkja hugmyndaflugið til þess að sigla fram hjá ýmsum vandamálum sem komu upp við gerð hennar. Til að mynda stóð aldrei til að nota kókoshnetur sem staðgengla fyrir hesta, en þegar ljóst var að ekki var nægilegt fjármagn fyrir hestum var gripið til þess ráðs. Aðeins einn hestur sést í allri myndinni, í örfáar sekúndur.

Sagan hermir að Python-menn hafi fengið liðsstyrk úr óvæntri átt við gerð myndarinnar. Hljómsveitir á borð við Jethro Tull, Led Zeppelin og Pink Floyd eiga að hafa látið fé af hendi rakna til framleiðslunnar, með von um að fá undanþágu frá skatti fyrir vikið. 

Mikil mold og takmörkuð þrif

Tökurnar fóru ekki vel af stað, síður en svo. Á fyrsta deginum skemmdist eina tökuvélin sem framleiðsluliðið hafði efni á. Þegar loksins tókst að laga hana var hljóðið í ósamræmi við myndefnið og ómögulegt reyndist að taka nærmyndir af samtölum leikara fyrr en gripurinn var kominn í lag á ný. Í ofanálag var veðurfarið í Skotlandi, þar sem myndin var tekin upp, ekki hið besta og stóðu leikararnir, í misþungum búningum, heilu dagana þaktir mold úti í kulda og rigningu.

Húmoristarnir og aðrir aðstandendur voru annars vegar ekki sérlega heppnir hótelið sem þeir gistu á meðan tökur stóðu yfir, þar sem heitt vatn var af skornum skammti og dugði alls ekki til að allir kæmust í langþráða sturtu eftir tökur. Af þeim sökum var reglulegt kapphlaup að hótelinu hvern dag til þess að þrífa sig.

Eftirminnileg frumsýning

Monty Python and the Holy Grail var svo frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Viðbrögðin voru góð en snuðra hljóp á þráðinn þegar slökkviliðsmenn birtust skyndilega í bíósalnum til að fylgja áhorfendum út. Þá var búið að hringja inn sprengjuhótun, en sem betur fer reyndist um gabb að ræða og áhorfendur fengu horfa á myndina til enda.

Þrautaganga grínistanna við tökur myndarinnar risti djúpt og telja þeir The Holy Grail sístu myndina sína

…illskiljanlega!

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading