Það hefur sjálfsagt verið miklu skemmtilegra að búa til þessa mynd heldur en lýsa mætti upplifuninni að sitja í gegnum hana alla.

Einkahúmor er yfirleitt á mjög gráu svæði og þá ekki síst þegar upp koma óhjákvæmilegar vangaveltur um að hafi verið teygt lopann fullmikið. Þessi Iceguys-búbbla eða almennt þetta æði Íslendinga fyrir strákasveitasprellinu á undanförnum árum hefur verið einkennileg tilraun og í senn umræðuverð markaðsmaskína. Jafnvel svolítið þversagnarkennd. Iceguys-æðið hefur á besta degi reynst vera skítsæmilegt egórúnk fimmmenningana í bland við líflegt bransaspaug. Aðdáendahópurinn hefur vissulega verið í yngri kantinum og eðlilega; lögin eru ekkert sérstök þrátt fyrir að leynist þarna allnokkrir eyrnarormar og gríntónninn er sjálfmeðvitaður þó svo að heildarútkoman sé meira í rembingi heldur en hnyttni. En að þessu sögðu er varla hægt að komast hjá því að fagna meira gríni þegar kemur að íslenskum kvikmyndum. Sama hversu litlum sigrum þurfi að fagna.

‘Iceguys: The Movie’ er best geymd fyrir aðdáendur (vægast sagt misgóðu) sjónvarpsþáttanna, og á frásagnarstigi – ef við leyfum okkur að hugsa í þannig efnum – gengur hún best upp sem langur lokaþáttur. Það þarf ekki háa greindarvísitölu eða djúpt íslenskt dægurmenningarvit til að geta notið bíómyndarinnar á eigin sjálfstæðu forsendum, nema hvað að ólíklegra er að áhorfandinn fái mikið úr heildarupplifuninni, hvort sem það komi heildarstemningunni við eða fimmenningunum á einhverjum persónutengdum basis. Þessi mynd er upp á sitt hressasta og fjörugasta þegar hún hugsar í sketsum, en þegar efniviðurinn neyðist til þess að vera drifinn af fyrirsjáanlegu og klúðurslega samsettu ‘plotti’, þá breytist kátínan fyrr en síðar í algjöra klígju. Þetta er eins og útþynnt nálgun til að taka Iceguys-hljómsveitina og vinna í kringum hana kvikmynd sem er nær því að spilast út eins og algjör Sveppamynd í stað þess að eiga roð í stall í líkingu við ‘Með allt á hreinu.’ Meira að segja mislukkaða framhaldsmynd þeirrar myndar, ‘Í takt við tímann’, hafði meira úr að moða í tengslum við linnulausan einkahúmor.

Það er sami lykilvandinn sem plagar þessa bíómynd og hefur einkennt sjónvarpsseríurnar þrjár, að vísu í misjafnlega miklum mæli. Þetta hefur allt með tón og útfærslu að gera frekar en ásetning; efnið er of barnalegt fyrir fullorðna og sennilega of fullorðinslegt fyrir börn. Það er ekkert nýtt af nálinni að sjá fræga einstaklinga gera grín að sjálfum sér og fyndnasta konseptið á bak við Iceguys er einfaldlega bakað inn í grunnhugmyndina; að strákahljómsveit með landsþekktum skemmtikröftum hafi verið stofnuð og pródúseruð fyrir sjónvarpsþætti. Eftir því sem leið á fyrstu þáttaröðina var orðið ljóst að grínið væri fulltakmarkað fyrir narratífu og það nákvæmlega má segja um bíómyndina, nema myndin er formúlukenndari og reiðir sig við hálfbakaðan söguþráð og einkennilega ‘ameríska’ framvindu. Tilraunir til að troða inn sál eða hlýlegum boðskap í síðari hluta myndarinnar ganga engan veginn upp – og hið sama má segja um tilraunir til að taka strákana alvarlega sem persónur.

Myndina, eða réttar sagt teyminu á bak við hana, sárvantar að kunna að selja einlægnina til að þykjast geta púllað fyrirlestra um mikilvægi vináttu og listina að njóta sín í listinni án þess að frægð eða peningar spili inn í myndina. Þegar bíómynd eins og þessi er morandi í sponsi og alls konar pródúseruðu plöggi, verður einlægnin voða innpökkuð, ósannfærandi og kemur þá í staðinn út eins og hvert annað uppfyllingarefnið í þessari mynd. Burtséð frá þessu er hér enn eina íslenska myndin á ferðinni sem reynir að tækla stærra umfang og efnivið heldur en framleiðslufjármagnið ræður við. Reynt er eftir fremsta magni að fela þetta með klippingu, kvikmyndatöku og lausnamiðaðri nýtingu á tökustöðum en myndin losnar aldrei við þennan ódýra sjónvarpskeim. Sem er gjörsamlega galið í ljósi þess að þrír leikstjórar koma að henni.

Iceguys: The Movie tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í þáttunum þar sem strákarnir eru enn ólmir í markmiði sínu að sigra heiminn með hæfileikum sínum. Eftir klassískan misskilning verður heilmikill viðsnúningur á væntingum þeirra, því í upphafi myndar gerðu þeir ráð fyrir ferðalagi til að hita upp fyrir hljómsveitina Backstreet Boys, en þá í staðinn finna þeir sig í púkalegum raunveruleikasjónvarpsþætti þar sem aðalvinningurinn er að túra með umræddu bandi. Drengirnir upplifa þá allan skalann af óöryggi auk þess að trekkja upp keppnisandann til að sigra aðalkeppnina.

Því miður er óskaplega lítið gert til að gera Iceguys-drengina sjarmerandi sem liðsheild og vantar allan broddinn í kómíkina þeirra á milli. Það er vissulega hluti af gríninu hvað þeir eru ítrekað sjálfhverfir í draumum sínum um að ‘meika það’ en þá verða viðsnúningarnir bara enn vandræðalegri. Það er engin persónuörk í boði fyrir þessa stráka og þróun hvers og eins er alfarið bundin við afmarkaða sketsabrandara; Frikki Dór og Jón Jónsson eru enn að metast um hvor bróðirinn er hæfileikaríkari og Aron Can hefur lítið að gera annað en að vera vitgrannur og laðast að töfrum sem munu kannski eða kannski ekki koma lokaþriðjungi myndarinnar til bjargar. Það er aðeins meira að frétta hjá Herra Hnetusmjör og Rúrik Gíslasyni; Hnetusmjör er lítill í sér fyrir að verða aldrei jafn eftirsóttur og Rúrik, sem er þarna aðallega til að vera brandaradæla. Annaðhvort er blóðmjólkað grínið um svefnvenjur hans, rullu hans í hljómsveitinni eða stöku sinnum ákveður handritið að hann kunni varla stakt orð í ensku. Rúrik og Herra Hnetusmjör fá að minnsta kosti leifar af einhverju sem telst til persónusköpunar eða þróunar. Það gengur ekki fullkomlega upp en dýnamík þeirra er þó allavega merki um jákvæða uppfyllingu sem reynir að þjóna söguframvindunni. Skárra er það að láta reyna á innihald með bersýnilegum klisjum frekar en að reyna bara ekki neitt.

Það eru tveir einstaklingar sem skína með prýðum og skilja bæði eitthvað fyndið og eftirminnilegt eftir sig. Annars vegar er það Ólafía Hrönn Jónsdóttir, sem stelur hverri einustu senu með tilþrifum eins og hún nenni ómögulega að vera í þessari mynd (eða hún er bara það góð að það virkar!) og hins vegar er það Jay Khan sem ýkt útgáfa af sjálfum sér úr keppninautabandinu Team 5ünf. Khan veit algjörlega í hvernig mynd hann er staddur og er í hárréttum gír án þess að keyra á rembingnum. Leitt að hinir meðlimir sömu hljómsveitar eiga ekki séns í sambærilega útgeislun eða nærveru á skjánum. Það má heldur ekki skauta fram hjá því hversu glatað er að sjá hvað Sandra Barilli fær lítið spennandi til að vinna með og Salóme Gunnarsdóttir verður ansi hreint afleit þegar persóna hennar fer betur að skýrast.

Atburðarásin er pökkuð glensi en í senn innantóm varðandi plottlínuna sem blasir við. Myndin fer aldrei alla leið með fókusinn á raunveruleikakeppnina sem er þarna í brennidepli. Handritið sprettir yfir keppnirnar og áhersla á aðrar hljómsveitir er lítil sem engin. Söguþráðurinn verður þess vegna lítið annað en bara samansafn tékkboxa sem þarf að fylla í, til þess að farsagangurinn geti haltrað frá A til B í áttina að frekar púðurslausum anti-klæmax endi.

Sumar bíómyndir eru þó með ákveðna vörn gegn gagnrýni, sérstaklega þessar sem tengjast einhverjum menningarbólum eða ókrefjandi markhópum. Ánægja hvers og eins á Iceguys-myndinni veltur alfarið á því hvort viðkomandi fíli hópinn almennt, tónlistina þeirra og finnist það fyrst og fremst óborganlega fyndið að þeir hafi greinilega húmor fyrir sjálfum sér. Er það nóg til að bera uppi heila bíómynd? Undirrituðum finnst það alls ekki og með fleiri uppköst að handritinu hefði myndin getað gripið þarna ídeal færi til að spila betur með ádeilu á tónlistarbransann, íslenska lítilmagnann, auglýsingavæðingu eða breiðari skemmtanaiðnaðinn. Í staðinn blasir við ofpródúseraður farsi sem flæðir alfarið á misfyndnum frösum, ódýrum dramavendingum, sundurtættum plotthugmyndum sem þróast í skrípalegt plott sem gerir hallærislegar tilraunir til þess að toga í hjartarætur áhorfenda.

Það hefur sjálfsagt verið miklu skemmtilegra að búa til þessa mynd heldur en lýsa mætti upplifuninni að sitja í gegnum hana alla en það er alltaf hættusvæðið þegar einkahúmor tröllríður öllu. Afraksturinn er eitthvað þesslegur og Iceguys: The Movie mun sennilega eiga sitt móment í búbblunni sinni en fellur síðan rakleiðis í gleymsku áður en langt um líður.

Svona eins og Rokklingarnir.