Þegar Event Horizon leit fyrst dagsins ljós voru viðtökur volgar ef ekki dræmar, þá sérstaklega á meðal gagnrýnenda. Aðsóknin var heldur ekki upp á marga fiska en í gegnum árin hafa vinsældir þessarar sci-fi hryllingsmyndar stórlega aukist. Margir vilja jafnvel meina að hún sé besta/skásta myndin frá Paul W.S. Anderson. Þetta veltur reyndar á því hvað viðkomandi finnst um Mortal Kombat myndina hans frá 1995.
Allavega, á meðal dyggra aðdáenda Event Horizon eru (fasta)gestirnir Einar Michaelsson og Hafsteinn Laxdal. Þeir eru saman sestir niður með Atla (og síðar meir Tomma) til að dásama þessa fullkomlega ófullkomnu og pönkuðu ræmu þar sem meistarar eins og Sam Neill heitinn og Laurence Fishburne leika listir sínar af bestu lyst.
Myndin hefur líka merkilega sögu að baki í tengslum við skammarlegan mæli af glötuðu myndefni. Sökum þess að filmunegatífurnar glötuðust mun Anderson aldrei geta gefið út upprunalegu sýn sinni á Event Horizon. En meira um það í spjallinu, þannig að…
Upp með blöðin, brjótið þau saman og hlerið súmmeringu bíófíklana.







































































































































































































