Sam Raimi var einungis að hita sig upp með fyrstu myndinni. Þetta er ‘útskriftarmyndin’.

Er það bara ég eða eru framhaldsmyndir oftast betri þegar þær eru byggðar á myndasögum? Ekki er úr miklu að taka (ennþá, sjáum til eftir 10 ár…) en það er alveg sterkt mynstur að Batman Returns, X-Men 2, The Dark Knight og jafnvel Superman II voru skemmtilegri heldur en forverar sínir og með miklu skemmtilegra efni til að vinna úr. En þó svo að ‘origin’ sögur geti verið yfirleitt skemmtilegar, þá er miklu meira rými til að fara í alls konar áttir þegar búið er að stilla öllu upp. Það er eitt að fylgjast með elskulegum lúða, Peter Parker í þessu tilfelli, þróast úr hversdagslegum ljúfling í massasvalan bjargvætt, en þær áskoranir sem taka við þegar tvöfalda lífið tekur við, þar eru oftar en ekki bestu bitarnir í dramatíkinni. Þetta sannar sig margfalt í tilfellinu hér.

Fyrri Spider-Man myndin var að mínu mati ágæt afþreying sem leyfði sér að vera teiknimyndaleg og ýkt, en hún hrapaði nokkuð heiftarlega í seinna áhorfi. Engu að síður tókst Sam Raimi að skapa þétta, býsna skemmtilega og vel keyrða ofurhetjumynd. Nú er (sem betur fer) handritið ekki lengur í höndum hins mistæka David Koepp og áherslur eru komnar á breiðari level; Spider-Man 2 gerir margt af því sama nema bara enn betur. Ímyndið ykkur fyrri myndina og margfaldið hana með tveimur, í gæðum, efnistökum, hasar og tilfinningakrafti!

ALLT er bætt og betra: Betri hasar, betri söguþráður, betri skúrkur, betri rómantík, traustara handrit, dýpri persónusköpun, fyndnari húmor og miklu, miklu flottari tæknibrellur. Kóngulóarmaðurinn sjálfur er hættur að líta út eins og eitthvað beint tekið úr tölvuleik í þetta sinn og blandast eiginlega saumlaust inn í raunverulegt umhverfi. Leikurinn er líka orðinn áhrifaríkari. Einn veikasti punktur fyrri myndarinnar var hin yfirgnæfandi sápudramatík, þar sem samtölin fóru að verða heldur þreytuleg og áhrifalaus, en Spider-Man 2 hefur ekki þannig vandamál. Myndin er reyndar miklu meira ‘karakter-drifin’ og leikframmistöðurnar eru það góðar að atriðin haldast ógurlega vel saman.

Tobey Maguire tekur persónuna Peter Parker upp á allt annað stig, og sýnir að þetta er einstaklingur sem á erfitt með að lifa tvöföldu lífi og maður finnur fyrir hans kvöl gagnvart því að geta ekki tjáð draumastúlku sinni ást sína. Maguire hefur líka ákveðna færni þegar kemur að því að sýna óörugga vísindanördið á einn veg en síðan sjálfsöruggan þegar hann er mættur í búningnum. Þess vegna bragðbætir það heildarpakkann helling að sagan skuli núna skoða hvað gerist nákvæmlega þegar sjálfsöryggi ofurhetjunnar hverfur og hvaða áhrif það hefur. Mögulega er bara enginn séns á því fyrir Peter Parker að lifa tvöföldu lífi, eða það er möguleiki, en bara virkilega, virkilega, VIRKILEGA erfitt.

Alfred Molina er líka allt annað en bara brjálæðingur í hallærislegum búning (eins frábær og Willem Dafoe var á sínum tíma…) og gefur illmenninu góða dýpt þar sem alvöru manneskja leynist á bak við illindin. Þar að auki er hann bara svo skrambi svalur í orðsins fyllstu merkingu og brellurnar sem fylgja honum með ólíkindum góðar. Aðrir leikarar skila einnig sínu og helst ber að nefna J.K. Simmons, sem er aftur kominn og með enn fleiri one-linera sem að fá mann til að brosa út eitt. Þau Kirsten Dunst og James Franco láta sömuleiðis betur um sig fara í þessari sögu, og fá að vera örlítið þríviðari en síðast.

Það er eins og fyrri myndin hafi verið eintóm upphitun, að nú sé Sam Raimi með allt svigrúmið sem hann vill til að segja söguna sem hann vill. Raimi fær jafnframt innilegt hrós fyrir meðhöndlun þessarar myndar hvað ástríðu og fáeinar áhættur varða. Myndin er hæg og viðburðarlítil á köflum en aldrei kemur rennslið á kostnað aðalkaraktersins eða sögunnar. Hver eining smellur og aldrei dúkkar upp tilgangslaus sena. Það eina sem ég hef að setja almennilega út á er umdeilanlegi ferskleikinn í söguþræðinum. Ég tók það fram að ofan að hann sé mun betri en í forveranum. Samt sem áður er formúlan nokkuð gömul og hefur oft verið notuð áður (þ.e.a.s. þegar meginpersónan yfirgefur skyldu sína sem ofurhetja – var m.a. notað í Superman II og Batman Forever). En reyndar er þetta element sem þarf að vera, sérstaklega í tilfelli kóngulóarmannsins, og þetta er í sjálfu sér enginn alvarlegur galli. Ef krafsað er eftir göllum er það meira leitt hvað Mary Jane Watson er aftur aðgerðarlaus persóna, og annað skiptið í röð verður hún bara að enn einni ‘konunni-í-klípu.’

Það er a.m.k. pottþétt að hér sé á ferðinni framúrskarandi ræma í sínum flokki, og sum sé með betri ofurhetjumyndum fyrr eða síðar. Þetta er dúndurskemmtileg og án nokkurs vafa hreinræktuð Spider-Man mynd út í gegn, sem er einnig gædd þeim eiginlega að höfða til bæði krakka og fullorðna. Raimi veit nákvæmlega hvað hann er að gera og þetta er hans ‘útskriftarmynd’ sem sýnir það hvað best. Til að kóróna allt þá leyfir Raimi sér að vitna prakkaralega í gömlu Evil Dead-taktana sína í stórkostlegu atriði þar sem skúrkurinn er formlega fæddur.

Gleymum svo ekki snillingnum Bruce Campbell í litlu gestahlutverki – en alveg magnaður þar – og sjálfum finnst mér að hann ætti að fá stærri og betri hlutverk í framtíðinni. En nóg um það. Frábær mynd.

Besta senan:
Lestarsenan! Shiii….

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading