Kvikmyndir kosta peninga. Yfirleitt alveg vænan slatta af peningum! Stundum þarf þá að grípa til örþrifaráða með fjárfesturum sem koma úr öllum áttum og í stórum Hollywood-framleiðslum getur það þýtt að netwörka við sponsaðila sem krefjast einhvers fyrir sinn snúð. Svonefndar ‘product placement’ reddingar geta verið duldar annað slagið og fallið prýðilega inn í bakgrunninn án þess að gefa merki um æpandi plögg, en svo eru hin tilfellin þar sem vöruframleiðendur fá að troða sínum merkjum inn í bíómyndir með slíkum hætti að það verður hálf hlægilegt.
Eflaust getur það verið tilgangurinn, að fólk taki eftir vörunum fyrst og fremst, en það er fátt sem listafólk í kvikmyndagerð hatar meira en afskiptasamir framleiðendur og frekir sponsaðilar enn fremur. Hinar hversdagslegustu senur verða þá að auglýsingu í miðri sögunni og erfitt er að meta hvar skal draga línuna á milli þess að geðjast fjármagnara og hvenær áhorfandinn er dreginn úr myndinni sjálfri vegna plöggsins.
Auðvitað eru til ýmsar bíómyndir sem gera óspart grín að product placement rugli eða skammast sín nákvæmlega ekkert fyrir að vera hundlangar vörukynningar. Skemmtilegustu tilfellin í þeim efnum eru til dæmis Spaceballs (1987), sem gerir dásamlega grín að Star Wars vörumerkjagleðinni, og auglýsir Winnebago og Benz í leiðinni…
Return of the Killer Tomatoes (1988) gerir síðan sponsdíla að sketsum í seinni hluta myndar. Mac & Me (1988) er stolt McDonald’s kynningarveisla og ekkert annað. The Wizard (1989) er sömuleiðis RISAplögg fyrir Super Mario Bros. 3.


Wayne’s World (1992) gerir einmitt eftirminnilega grín að sponsum þegar umræða í sögunni myndast um að fá sponsa í samnefndan þátt karaktera, þeim til mikillar mæðu. Josie and the Pussycats (2001) er stórfyndið dæmi sem treður kómískum kynningum í allflestar senur og með húmor fyrir því. Torque (2004) er annað glettið sýnidæmi með góða sjálfsmeðvitund.
Harold & Kumar Go To White Castle (2004) notar auglýsingu sem áfangastað í ævintýri sögupersóna. Síðan ber að nefna The Lego Movie (2014) og Barbie (2023), en þær ‘dótamyndir’ skýra sig sjálfar.
Nú skulum við renna yfir titlana og atriðin þar sem glettin eða klók nálgun skilaði sér ómögulega, en gargandi vörukynningar skiluðu meinfyndnum árangri.
Þetta er ekki raðað eftir neinni sérstakri röð, en byrjum á skóklædda fílnum í herberginu…
I, ROBOT (2004) – Converse All Star skór



Hér er vörukynning með eins konar ‘persónuörk’. Snemma í myndinni fer dágóður sekúndufjöldi í það að sýna Will Smith taka “vintage” Converse-skóna sína úr pakkningunum. “A thing of beauty,” mælir hann, og reglulega út alla myndina heyrist í persónum kommenta á skóna hans. Fjandinn verður síðan algjörlega laus þegar Converse-skórnir verða ataðir út í olíu, og þá aldeilis magnast upp atburðarásin.
POWER RANGERS (2017) – Krispy Kreme

Þessa mynd þarf eiginlega að sjá til að trúa. Þegar líður á lokaþriðjunginn fer Krispy Kreme að spila furðu mikilvægan þátt í söguþræðinum, og í rauninni gert að ‘McGuffin’ elementi myndarinnar. Persónur fara linnulaust að hrópa út Krispy Kreme nafninu til að áhorfandinn sé endanlega rotaður af rándýra plögginu.
CAST AWAY (2000) – Wilson

Þetta er ábyggilega BESTA dæmið um auglýsingu í bíómynd sem gekk fullkomlega upp í samhengi sögunnar. Blakboltinn Wilson varð ekki bara að ógleymanlegri vörukynningu, heldur elskulegri aukapersónu í mynd um mann sem festist á eyðieyju, með engan til að tala við, annan en þennan blessaða bolta. En í þessari sömu mynd má líka færa rök fyrir því að FedEx kynningin hafi lent ansi þokkalega.
DEMOLITION MAN (1993) – Taco Bell / Pizza Hut

Samkvæmt ádeiluklassíkinni Demolition Man varð vörumerkjastríð á milli helstu skyndibitastaðanna. Í upprunalegu vestrænu útgáfu myndarinnar er það Taco Bell sem var krýnt kóngamerkið. Taco Bell þótti hins vegar ekki vera nægilega þekkt á veraldarvísu, svo því var skipt út (með aðstoð hallærislegra döbba…) í evrópsku útgáfunni og Pizza Hut var þar lendingin.
EVOLUTION (2001) – Head and Shoulders

Ivan Reitman reyndi með heldur mislukkuðum árangri að fanga ‘Ghostbusters nema bara með geimverum’ fílinginn, en vitleysan náði tærum hápunkti þegar flösusjampóið reyndist vera besta vopnið gegn óvinunum. Myndin meira að segja endar á óforskammaðri Head and Shoulders vörukynningu. Þetta átti trúlega að vera sprenghlægilegt, en varð bara… dapurlegt.
THE AMAZING SPIDER-MAN 1 & 2 (2012-2014) – Bing

Það er yfirleitt ólgusjór af vörukynningum í myndum frá Sony, en það er óneitanlega skondið að sjá hvað tækninördið Peter Parker notast heilmikið við leitarvélina Bing. Heilvita manneskja myndir eflaust bara Gúggla hlutina, en það kemur ekki til greina ef Bing sér um að borga brúsann…
Talandi um…
THE INTERNSHIP (2013) – Google

“Google er æðislegt brand og besti vinnustaður í veröldinni” myndin…
COBRA (1986) – Pepsi

Cobra berst gegn glæpum með hjálp Pepsi…
MADAME WEB (2024) – Pepsi(cola?)

Einstakt tilfelli þar sem illmenni ofurhetjumyndar deyr af völdum auglýsingaskiltis. Ómetanlegt. Hlýtur að hafa vel kostað auka.
WORLD WAR Z (2013) – Pepsi

Þegar ‘zombie apocalypse’ er kominn á fullt skrið, svalar fátt þorstanum betur en ískalt Pepsi (sem yrði örugglega hlandvolgt í raun) beint úr sjálfssalanum. Virðist vera.
SPIDER-MAN (2002) – Dr. Pepper



Skömmu eftir að Peter Parker kemst að því að hann getur skotið út köngulóarvef úr úlnliðnum sínum, ákveður hann að testa kraftana til hins ítrasta. Ef horft er aðeins fram hjá þeirri greinilegu samlíkingu um unglingspilt í herbergi sínu að læra betur á líkama sinn á miðju breytingarskeiði, hvað kemur út úr hverju og þess háttar, þá reynir á kraftgetu hans að sækja gosdós með vefnum. Þarna sáu yfirframleiðendur sennilega kjörið tækifæri til að mjólka allt lífið úr atriðinu; hvaða gos kæmi til greina og hversu lengi í nærmynd. Dr. Pepper varð þá fyrir valinu og gæti þessi litli senubútur auðveldlega verið hálfs mínútna auglýsing áður en söguþráðurinn heldur formlega áfram.
THE ITALIAN JOB (2003) – Mini Cooper

Mini Cooper; Hentugur fyrir alla flótta í stórglæpum.
MAN OF STEEL (2013) – IHOP, Sears ofl.

Superman slæst við fjendur við IHOP (e. International House of Pancakes) og 7-11 verslun. Auk þess vinnur móðir hans, Martha Kent, í Sears-verslun. Afþvíbara…
IRON MAN (2008) – Burger King

Aðdáendur fyrstu Iron Man-myndarinnar hafa örugglega ekki gleymt senunni þar sem Tony Stark snýr aftur frá Afghanistan í sársauka og segir að það fyrsta sem hann vill er amerískur ostborgari. Strax í næsta atriði sést Jon Favreau afhenda manninum Burger King poka, þar sem merkið snýr að sjálfsögðu að myndavélinni, sem Stark síðan eignar sér alveg án þess að deila með sér.
YOU’VE GOT M@IL (1998) – AOL og Starbucks

Ef þú manst hvað það þýddi að vera með 56k módem á heimilinu til að tengjast internetinu, þá ertu skrefinu nær því að vera miðaldra eða löngu búin/n/ð að stíga yfir þann þröskuld. Til lukku með það. En í rómantísku gamanmyndinni You’ve Got Mail skiptast ókunnugir einstaklingar á tölvupóstum eða notast við spjallkerfi frá AOL. Það má alveg segja að þetta þjóni söguþræði myndarinnar prýðilega, en það er hæpið að segja hið sama um allt Starbucks rúnkið þar sem vöruseðillinn er listaður upp í smáatriðum.
EVEREST (2015) – The North Face

Ef þú ætlar að leggja í lífshættulegan leiðangur, er trúlega best að vera græjaður upp með íslenskum vörum. Þótt það bæti ekkert endilega lífslíkurnar, af Everest-mynd Baltasars að dæma.
THIS IS THE END (2013) – Milky Way

Þegar heimsendir brestur á og hópur vina festist saman undir einu þaki, þá getur auðvitað myndast ágreiningur yfir stóru málunum; eins og hver á að fá síðasta Milky Way súkkulaðið. Jonah Hill gengur meira að segja svo langt að ropa út úr sér orðin: „The only issue is, I kind of need the Milky Way,“ og segir hann ástæðuna vera út af lágum blóðsykri.
ZOMBIELAND (2009) – Twinkies

Ekki eini ‘zombie apocalypse’ titillinn í þessari upptalningu, en þráhyggja persónu Woodys Harrelson gagnvart svonefndum Twinkies frá Hostess reynist vera lykilþáttur í persónusköpuninni hans og í senn tákn hans um leitina að voninni á vondum tímum. Þetta gæti tengst því að þetta tiltekna sætindi er talið ekki eiga sér neina endingu eða síðasta neysludag.
En Twinkies er engu að síður alveg viðbjóðsleg sykurleðja undir skraufþurru sætabrauði sem helst væri ráðlagt að forðast, samkvæmt undirrituðum.
E.T. (1982) – Reese’s Pieces

Einn mikilvægasti kafli þessarar sígildu myndar Spielbergs. Upprunalega stóð til að nota M&M en þeirri beiðni var hafnað af nammirisunum. Þá var hjólað í keppinautinn í staðinn og Reese’s hefði ómögulega getað óskað eftir betri vörukynningu, enda langstærsta mynd síns tíma og hélt hún aðsóknarmetinu um árabil. Þetta hefur jafnframt oft verið nefnt sem dæmi þar sem auglýsingin small vel í söguna og svínvirkaði á neytandann. Og geimveruna.
FAST & FURIOUS MYNDIRNAR – Corona

“You can have any brew you want, as long as it’s a Corona” – Dominic ‘Andvarp’ Toretto.
Til að gera málin fáránlegri, þá læðist inn heil Corona kynning í Paul Walker ‘tribute’ kaflanum í Furious 7…
NÁNAST ALLAR GRÍNMYNDIR MEÐ ADAM SANDLER…

Þegar mynstrin eru tíð fara þau að breytast í staðlaða formúlu. Happy Gilmore hafði Subway, Little Nicky hélt ekki kjafti um hvað Popeye’s væri góður kjúklingastaður, Click lofaði TGI Friday’s í ræmur, Jack & Jill tók Dunkin’ Donuts plöggið alla leið… Svo aðeins fáein dæmi séu nefnd.
Að minnsta kosti er Sandler töluvert betri sölumaður heldur en grínisti.
LANGFLESTAR JAMES BOND MYNDIR

Þetta er að vísu skiljanlegt. Bond-serían hefur nánast alla tíð verið keyrð á sponsi. Bílar, úr, símar, jakkaföt, drykkir, rakvélar; allur fjandinn. Þetta er löngu orðið að bæði hefð og mikilvægu hráefni.
TRANSFORMERS: AGE OF EXTINCTION (2014) – ALLT MÖGULEGT

Michael Bay er með síðustu leikstjórum kvikmyndasögunnar til að eiga svefnlausar nætur vegna öskrandi vörukynninga í hans myndum. Hann virðist frekar hallast að ’The more, the merrier…’ reglunni og bjánalegustu dæmin eru í öllum Transformers myndunum hans, en koma klárlega verst út í þeirri fjórðu. Myndin skransar stöðugt til að gefa tíma til þess að kynna m.a. Bud Light, Victoria’s Secret, Armani, Beats ofl.
En…!
Krúndjásnið í filmógrafíu Bays verður alltaf (sjá næstu mynd)…
THE ISLAND (2005) – ALLT FOKKIN’ MÖGULEGT



The Island er gjörsamlega stappfull af kjaftæði í nánast hverri senu þar sem markmiðið er að klessa vörumerkjum framan í okkur. Það fyndnasta er samt hvað myndin reynir að fara lúmskt með það á köflum. Fyrr en síðar fer margt smátt að hrannast upp í eitt risastórt plögg-áreiti. Myndin verður miskunnarlaus með meiru hvað þetta varðar og hún er klárlega efni í forvitnilegan drykkjuleik
… ef þig langar til að fara beinustu leið í blakkát innan tveggja klukkustunda!








































































































































































































