Er þetta enn klassík eða geltandi hvolpur síns tíma? Er enn einhver innistæða í þessu ‘kúli’?

Jæja, sperrið upp eyrað og krumpið jakkafötin. Hin óviðjafnanlega og brautryðjandi Reservoir Dogs markaði sérdeilis fyrstu skrefin fyrir Quentin Tarantino, sem síðar meir varð að fordæmalausum ‘rokkstjörnu-leikstjóra’.

Tarantino átti stóran hlut í að koma indí-byltingunni af stað í byrjun ‘90s áratugarins, og legasía hans fyrstu myndar er svo sannarlega sterk, en er enn einhver innistæða í hennar’kúli’? Er hún klassík eða geltandi hvolpur síns tíma?

Gunnar Anton Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður veltir þessari spurningu fyrir sér og í sameiningu skoðum við málefni eins og upphafsskref leikstjórans ásamt sarpi mannsins eins og hann leggur sig.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading