Ævisögu- eða biopic-kvikmyndin svokallaða tilheyrir afar sérstökum undirflokki sem þykir sérlega vinsæll hjá Óskarsakademíunni, leikurum sem vilja spreyta sig í tilþrifaríkum eftirhermum og áhorfendum sem vilja láta mata ofan í sig helstu upplýsingar um viðkomandi einstakling án mikilla erfiða.
Hin sígilda eða dæmigerða uppskrift biopic-myndar takmarkar sig við hálfgerða ‘Wikipedia-stikkpunkta’, frá vöggu til grafar. Verstu dæmin eru akkúrat þær kvikmyndir sem skauta yfir einhvern niðurnegldan kjarna og flakka á milli ára til að ná sem mestu af ævi þeirra sem fjallað er um. En ævisaga manneskjunnar, eins og hún leggur sig, er sjaldnast formúlubundin. Ævi flestra samanstendur af fjölmörgum ‘narratífum’, og því meira framúrskarandi sem einstaklingurinn er, því bitastæðari eru stikkpunktarnir. Fólk í raunheimum fer sjaldnast í gegnum eina ‘karakterörk’, heldur fjölmargar.
Bestu ævisögumyndirnar eru venjulega þessar sem ná tökum á taktföstum kjarna hjá viðkomandi manneskju sem til umfjöllunar; sem lýsir sér þannig að áhorfandinn fær fullkomna mynd af gefnum einstaklingi án þess að þurfi að fylgja honum frá uppvaxtarárum eða í gegnum margra ára tímabil. Mannlegi þátturinn, hugurinn og ósvikna eðlið er nánast alltaf meira spennandi heldur en söguframvinda um afrekspunkta. Að vísu eru slíkar biopic-myndir sjaldnar stórvinsælar eða auðmeltanlegar á meðal almennings.
Gott dæmi; Árið 2007 kom út mjög abstrakt og einkennileg mynd um Bob Dylan sem heitir I’m Not There. Þar er einstaklingurinn brotinn upp í margar sögur, þar sem mismunandi leikarar túlka ólíkar hliðar og vinkla á Dylan yfir hans ævi. Myndin var auðvitað enginn veraldlegur hittari, en hún lagði út merkilega og frumlega heildarsýn engu að síður. Tæpum tveimur áratugum seinna var gerð töluvert áhorfendavænni mynd, A Complete Unknown. Sú mynd var meira rútínubundin, fínslípuð, yfirborðskennd og snérist að mestu um að gefa Timothée Chalamet sína langþráðu Óskarsstyttu.
Ævisaga tónlistarfólks hefur alltaf verið snúin innrömmun. Ein allra vinsælasta mynd ársins 2026 – og í senn vinsælasta mynd allra tíma í sínum flokki – er ‘musical biopic’-myndin Michael, þar sem mörg ár í lífi Michaels Jackson eru matreidd til þess sérstaklega að gefa áhorfandanum ákveðna nostalgíu og fílgúdd-tilfinningu. Þetta var ídeal mynd til að sleppa gráum skuggum og núans og veita fólki ákveðna valideringu á merkum tónlistarmanni.
Hvað sem segja má um Michael (og það er alveg margt…), þá var hún að minnsta kosti ekki framúrskarandi ævisaga í efnislegum skilningi. En þá í staðinn er hægt að mæla með Better Man eða Rocketman, sem léku sér töluvert að formúlunni og reyndu ekkert að hylja yfir galla og egó sinna einstaklinga.
Til að bruna beint og loksins að efninu, þá eru hérna 20 eftirtektarverðar ævisögumyndir. Ekki endilega þær bestu sem gerðar hafa verið*, en að mestu leyti traustar kvikmyndir og með nálgun sem náði að kafa út fyrir föstu formin með áhugaverðum hætti. Eða þær rúlluðu föstu uppskriftinni upp með undraverðum og/eða grípandi hætti.
Titlarnir raðast upp í stafrófsröð. Byrjum á…
24 HOUR PARTY PEOPLE (2002)

Þessi mynd er argasti æðibiti frá byrjun til enda og gefur trúverðuga, smáatriðaríka, fróðlega og bölvað ánægjulega mynd af tónlistarsenunni í Manchester og upphaf rave-menningar á áttunda áratugnum. Þetta er sjálfsagt hápunktur ferilsins hjá kvikmyndagerðarmanninum Michael Winterbottom (Welcome to Sarajevo, 9 Songs ofl.) en myndin var tekin upp á litlar stafrænar vélar – og þá í gífurlegu magni – til að búa til svigrúm fyrir spuna í bland við mjög hrátt og raunverulegt lúkk til að innsigla mocumentary-stílinn og tíðarandann (t.a.m. voru heilu klúbbarnir endurbyggðir fyrir þessa mynd). Í senn er þetta einfaldlega bara fáránlega skemmtilegt biopic um sérviskulega sjónvarpsmanninn Tony Wilson, sem er snilldarlega leikinn af Steve Coogan.
Hver segir svo að það sé ekki algjört partí að fræðast og læra helling um athyglisverða tíma í athyglisverðum kúltúr?
THE APPRENTICE (2024)

Einhverjir spyrja sig kannski „Af hverju ætti ég að horfa á biopic um Donald Trump?“ og það er 100% gild spurning og skiljanlegt þegar umtal í kringum kauða er með öllu móti óhjákvæmilegt, en hvort sem okkur líkar það betur eða verr þá er þessi egódrifna mennska appelsína löngu komin í okkar sögubækur. Hvort það leynist einhver snefill af spennandi vinkli í dramatíseríngu mannsins og hans ‘sigursögu’ til að halda athygli áhorfandans, er betri spurning. Svarið er – því miður (?) – já.
The Apprentice hefur klárlega sinn vinkil uppi í erminni sem fer ekki eftir þessari standard biopic uppskrift og fer sennilega einn af stærri plúsum þessarar framleiðslu sá að myndin hefur verið algjörlega og nokkuð augljóslega unnin í hans óþökk. Það eru hressandi fréttir. Sérstaklega þegar kemur frá manni eins og honum þar sem allt snýst um ímynd og hið ytra. Hvort að The Apprentice reynist vera tennt djúpgreining á persónuleika Trumps er kannski til fullmikils ætlast, en óháð opinberu persónunni eða áliti undirritaðs á honum er nægilega mikið til staðar í þessari mynd til að gefa upp krassandi og athyglisverða svipmynd af því hvernig hægt er að frekjast og hrottast til að gera sinn eigin persónulega Ameríska draum að veruleika.
Auk þess er Sebastian Stan alveg æðislegur í þessu hlutverki.
AMERICAN SPLENDOR (2003)

Hér er um stórfurðulega dramedíu að ræða um alveg stórmerkilega ómerkilegan gaur, sem er akkúrat það sem gerir American Splendor svo merkilega. Paul Giamatti er fullkomlega brilliant og leikur króníska fýlupúkann Harvey Pekar, sem er í raun bara andskoti hversdaglegur gaur sem naut frægðar fyrir myndasögurnar sem fjölluðu um hversdagslíf hans og endalausa, meinfyndna tuð. Mætti því færa rök fyrir því að American Splendor sé bæði ævisögumynd og myndasöguaðlögun…
En myndin er allavega frábærlega þurr og bráðskemmtileg. Pekar er kannski ekkert sérstaklega geðþekkur en það er gaman að fylgjast með búbblunni hans og þeim breytingum sem á verður þar. Kvikmyndin er líka sett upp með glettnum hætti þar sem fjórði veggurinn er ítrekað mölvaður og hinn raunverulegi Harvey Pekar skýtur upp kollinum annað slagið.
Mæli eindregið með.
CATCH ME IF YOU CAN (2002)

Svika- og krimmasagan hjá Frank William Abignale (og síðar meir leiðin hans að heilsteyptara atvinnulífi) býður ekki og hefði aldrei boðið upp á standard ævisögumynd, heldur kómískan dramaþriller sem spilast út eins og absólút farsi. Áður en Steven Spielberg tók að sér verkefnið að leikstýra kvikmyndinni um Abignale höfðu aðrir fagmenn á borð við Gore Verbinski, David Fincher, Milos Forman og fleiri sýnt sögunni áhuga. En Spielberg hafði vinninginn og matreiddi bráðskemmtilega mynd með Leonardo DiCaprio upp á sitt allra besta, með hliðarskammti af toppleik frá Tom Hanks, Christopher Walken, Amy Adams og fleirum.
Catch Me if You Can verður seint talin á meðal bestu Spielberg-myndanna eða jafnvel Spielberg biopic-myndanna, en tilbreytingin er hressandi að sjá ævisögumynd sem spilast út eins og fjölbragða persónudrifinn eltingarleikur. Það geislar orka og ánægja af skjánum þegar Abignale staldrar við og lifir sínu besta lífi, þá í dulargervi sem flugmaður, læknir eða lögfræðingur, en við yfirgefum aldrei kollinn á honum. Bókstaflegur flótti fer að sjóðast saman við andlegan flótta og alltaf hangir það yfir kauða í augum áhorfandans að fölsku draumarnir eru lítið annað en tímabundin sæluvíma.
Og að sjálfsögðu, fyrst þetta er Spielberg-mynd, fylgja þarna með alls konar pabba-issjús sem bakast inn í ljúfsárt melódrama. En þegar þessir tveir klukkutímar eru liðnir er varla hægt að komast hjá því að hugsa: „Djöfulsins meistararefur var þessi Frank Abignale.“
THE DIARY OF ANNE FRANK (1959)

Líkt og mörgum ef ekki allflestum er kunnugt þá hélt Anne Frank dagbók meðan hún var í felum í Amsterdam ásamt fjölskyldu sinni og fjórum vinum þegar Holland var hernumið af Þjóðverjum. Dagbókin fannst eftir að Anne og fjölskylda hennar höfðu verið hneppt í fangabúðir nasista, þaðan sem eingöngu faðir hennar Otto Frank átti afturkvæmt.
Kannski skýrir þetta val sig sjálft eða að minnsta kosti hvað varðar einstaklinginn sem um ræðir, en þessi kvikmynd er byggð á samnefndu leikriti frá 1955 sem hlaut Pulitzer-verðlaunin. Leikstjóri myndarinnar, George Stevens, hafði áður gert garðinn frægan með því að ná myndefni úr fangabúðum seinni heimsstyrjaldarinnar á meðan stríðinu stóð. Útfærsla Stevens á umfjöllunarefninu er þó áhrifarík, mannleg út í gegn og geirneglir bæði innilokunarkenndina og einangrunina með áherslu á þögnum í hljóðvinnslunni.
Ef ske kynni að áhorfandinn kjósi að horfa á aðeins eina kvikmynd um þetta viðfangsefni, þá er 1959-útgáfan sú eftirminnilegasta.
DOLEMITE IS MY NAME (2019)

Upp úr circa aldamótunum fór það að verða ferlega sjaldgæft að sjá Eddie Murphy spreyta sig eða sýna einhvern eldmóð í brillerandi rullum (ef við tökum Shrek og Dreamgirls alveg úr jöfnunni), en Dolemite is My Name kom þar af leiðandi eins og hinn ferskasti andblær. Murphy er alveg óborganlega góður ef ekki fullkominn sem uppistandarinn, tónlistarmaðurinn en ofar öllu blaxploitation goðsögnin Rudy Ray Moore, sem setti sinn stimpil á áttunda áratuginn með hliðarsjálfi sínu, Dolemite. Fígúra þessi var bráðskemmtileg; klámfengin og kjaftfor kung-fu persóna sem vakti mikla athygli í fjórum kvikmyndum.
Craig Brewer (Black Snake Moan, Hustle & Flow ofl.) heldur skemmtilega utan um taumana með frábæran Murphy í forgrunninum og bilaðslega fjörugan hóp af aukaleikurum (m.a. Wesley Snipes sem stelur öllum sínum atriðum) Afraksturinn er stórskemmtilegur; myndin er fyndin, undarlega hjartnæm og fer alla leið í innliti sínu til skemmtilegs tíma í skemmtilegum bransa.
ED WOOD (1994)

Frábær kvikmynd um einn versta kvikmyndagerðarmann sögunnar, og jafnframt langbesta myndin sem Tim Burton hefur gert. Uppsetningin er skemmtileg og er í líkingu við bjartsýna lítilmagnasögu, sem ofar öllu snýst um passjóneraðan listamann sem vill ekkert meira en búa til kvikmyndir. Hvort sem hann er góður á sínu sviði eða ekki er algjört aukaatriði. Burton hefur ítrekað sóst í sögur af karakterum sem eru skrýtnir, utangarðs og ekki öllum að skapi, og í því samhengi er athyglisvert hvernig hann virðist tengja sig við Edward D. Wood Jr., sem Johnny Depp blæs heilmiklu lífi í og tekst honum að gera kauða afskaplega viðkunnanlegan – þó myndin sé vissulega skuldlaust í eigu Martins Landau sem hryllingsgoðið Bela Lugosi.
Þessi stórfyndna og léttdramatíska saga um bíóást, náin sambönd og teymisvinnu leyfir sér ýmis listræn leyfi, sem er algengt og eðlilegt, en erfitt er að ímynda sér betra kvikmyndaverk um kostulegan sérvitring sem vildi ekkert meira en að trylla lýðinn með góðu bíói, þó honum hafi oftast bara tekist að gera lýðinn trylltan af kolröngum ástæðum.
THE ELEPHANT MAN (1980)

Ógleymanleg kvikmynd. Það er ekki hægt að skafa undan því eða segja það öðruvísi. Martraðarfóðurs-meistarinn David Lynch átti þarna allan ferilinn frammi fyrir sér enn þegar hann hlóð í þessa mannlegu og átakanlegu sögu um hinn eftirtektarverða og elskulega John Merrick (John Hurt). Flestir ættu nú að þekkja til þessarar myndar en ef svo er ekki raunin þá fékk Merrick viðurnefnið „fílamaðurinn“ sökum þess að vera með alvarlegan sjúkdóm og afmyndað andlit. Vegna útlitsins var hann settur í sirkus en dag einn kemur að honum læknir (Anthony Hopkins) sem ákveður að taka hann að sér til að skoða hann út frá vísindalegum hliðum. Fljótlega vingast læknirinn við Merrick og gefur honum húsnæði í spítalanum sínum með vonir um að betra líf taki við og verði aldrei nokkurn tímann aftur litið niður á hann.
The Elephant Man er ein af þessum myndum sem hefur fullt aflið til að geta snert við hverjum sem er, sama á hvaða aldri. John Hurt á þarna sögulegan leiksigur í aðalhlutverkinu sem óheppilegur einstaklingur sem er þarna í senn heillandi og bráðgáfaður. Myndin kremur að sjálfsögðu hjartað af og til, enda hefði það aldrei verið líkt Lynch að sykurhúða eða milda neitt. En þetta er kvikmynd sem býr yfir botnlausum krafti, sjarma og innihaldið jafnt og andrúmsloftið hefur getuna til að dáleiða einstaklinga með hin hörðustu stálhjörtu.
Og til að undirstrika hvað Óskarsverðlaunin eru oft taktlaus og ómarktæk, þá var þessi mynd tilnefnd til átta verðlauna en vann ekki stökustu styttu.
Fáránlegt.
ELIZABETH (1998)

Hvernig er ekki hægt að elska kvikmyndina sem kynnti öllum heiminum fyrir Cate Blanchett og hennar hæfileikum? En þó svo að Elizabeth hafi fengið hörkugóðar viðtökur á sínum tíma féll hún svolítið í skuggann á annarri períódu-ævisögumynd frá sama ári; Shakespeare in Love.
Þessi saga segir frá vegferð Elizabetar fyrstu að því að verða Englandsdrottning þar til hún verður krýnd 25 ára gömul. Atburðarásin leggur sérstaklega áherslu á taumlausar tilraunir hirðarinnar til að reyna að gifta hana, ekki síður hatrið sem kaþólska kirkjan bar til hennar og síðan ástarsamband hennar við lávarðinn Robert Dudley.
Myndin fjallar um leið Elizabetar fyrstu að því að verða drottningin yfir Englandi þar til hún er krýnd 25 ára gömul. Í myndinni er lögð áhersla á endalausar tilraunir hirðarinnar til að reyna að gifta hana, um hatur kaþólsku kirkjunnar á henni og ástarsamband hennar og Robert Dudley lávarðar.
Eins og við má búast þá lítur myndin óaðfinnanlega út í listrænni hönnun, út frá sviðsmyndum, búningum og þess háttar, auk þess að vera frábærlega leikin út í gegn. Þegar upp er staðið bara glæsilegt kitl fyrir alla sem kunna að meta góðar tímabilsmyndir.
Framhaldsmyndin aftur á móti (Elizabeth: The Golden Age) nær ómögulega sömu hæðum og þessi.
ERIN BROCKOVICH (2000)

Þetta var myndin sem þaggaði niður í mörgum hæðnisröddum á tíunda áratugnum sem sögðu að Julia Roberts væri ekkert nema stórstjarna sem best væri geymd í rómantískum kómedíum. Með Erin Brockovich sameinuðu þau Steven Soderbergh krafta sína til að segja ótrúlega magnaða afhjúpunarsögu með algerum töffara í brennidepli. Skikkjulausar hetjur geta komið úr öllum áttum.
Í upphafi myndarinnar er Erin Brockovich atvinnulaus og einstæð þriggja barna móðir sem þráir að komast í fast starf en hlutirnir ganga hægt. Erin tókst ekki einu sinni að vinna lögsókn á hendur lækni í bílslysi sem hún lenti í. Þetta leiðir þá til þess að hún þvingar lögfræðinginn sinn til að ráða sig í vinnu í sárabætur fyrir það að hún tapaði málinu. Hún er ráðin til reynslu en enginn tekur hana alvarlega í fyrstu, enda ítrekað gagnrýnd fyrir klæðaburð sinn og þykir hún líka heldur gróf í fasi. Allt þetta breytist þegar hún er að rannsaka dularfullt fasteignamál sem leiðir til þess að hún kemur upp um vatnsmengun í Hinkley í Kaliforníu.
Erin Brockovich er sérkennilega ó-Hollywood-leg ‘Hollywood-mynd;’ hún er hæg, aldrei melódramatísk eða asnalega ýkt, heldur bara fjandi kósý, grípandi og gefur upp grjótharða mynd af einstaklingi sem óvart varð að umhverfissinna. Einstaklingi sem undirritaður hefði ábyggilega aldrei heyrt um ef ekki væri fyrir þessa mynd.
FRIDA (2002)

Nú kemur ákveðin hlutdrægni inn í spilið. Undirritaður ELSKAR Fridu Kahlo; verkin, söguna, baráttuviljann, persónuleikann hennar og hvetur alla og ömmur þeirra til að leita uppi sem flestar bækur og heimildarmyndir um þessa merku listakonu. Kvikmyndin með Sölmu Hayek er að mörgu leyti ‘týpísk biopic’ mynd í efnistökunum, sem er miður, en leikstjórinn Julie Taymour skreytir myndina út og inn með listilegum stílíseringum sem fanga anda Kahlo. Í höndum einhvers annars, hefði þetta getað orðið mjög þunn sjónvarpsmynd en umgjörðin poppar og Salma Hayek er óneitanlega frábær í þessu hlutverki.
Myndin einblínir mikið á haltu-mér-slepptu-mér samband hennar við Diego Rivera (fullkomlega leikinn af Alfred Molina) en Frida hverfur blessunarlega aldrei úr fókus sögunnar sem sinn eigin einstaklingur. Þess að auki er mikið lagt í hönnun, búninga og sviðsmyndir til að lífga upp á tímabilið.
Skemmtileg mynd allavega, um einstaka listakonu með magnaða heimssýn og rödd.
HIDDEN FIGURES (2016)

Hidden Figures segir heldur magnaða sögu stærðfræðingana Katherine Johnson og Dorothy Vaughan ásamt verk- og vélfræðingnum Mary Jackson; þriggja bráðsnjallra blökkukvenna sem störfuðu hjá NASA og áttu stóran þátt í að Mercury-geimferðaráætlunin heppnaðist . Hún snérist um að koma geimfaranum John Glenn á sporbaug um Jörðu og síðan heilum á húfi til baka. Þessi merkilegi atburður vakti heiminn til umhugsunar og snéri bandarískri vörn í sókn í geimkapphlaupi þeirra við Rússa.
Eins og verkefnið sjálft hafi ekki verið nógu erfitt þá þurftu þessar konur að glíma við ýmis konar fordóma, bæði í samfélaginu og á meðal samstarfsmanna. Þessar merku konur veittu síðan fjölda kynslóða innblástur og hvatti alla til að setja markmiðin hátt, þrátt fyrir að mæta mótbárum vegna húðlitar og kyns.
Það sem hérna blasir við er einfaldlega bráðskemmtileg og upplífgandi mynd sem hittir vel í sálina. Þær Taraji P. Henson, Octavia Spencer og Janelle Monae eru ógleymanlegar í sínum hlutverkum. Frásögnin er jafnframt einföld og áhrifarík og allt gengur upp með tilliti til tímabilsins.
Þessi fer í ‘feel-good’ bunkann.
I, TONYA (2017)

I, Tonya hefst á þessum frábæra texta: “Based on irony-free, wildly contradictory, totally true interviews with Tonya Harding and Jeff Gillooly”
Með lágmarkspúðri og öðruvísi tón hefði þessi mynd auðveldlega getað spilast út eins og stikkpunkta-ævisögumynd, en það er ákveðin uppreisn gegn slíku, af handritinu og leikstjórninni að dæma. Þá í staðinn verður einhver gegnumgangandi pönkismi sem kemur í veg fyrir of dæmigerða úrvinnslu eða setu. Niðurstaðan er svört kómedía sem rífur fjórða vegginn óspart; hún er sneisafull af orku, geggjun og tilfinningasveiflum þar sem Margot Robbie kveikir í skjánum með eldfimri útgeislun. Eflaust hefði það líka verið töluvert úr takt við persónuleika Tonyu Harding ef útkoman væri tannlaus og stöðluð. Kjarninn kemst allavega rakleiðis til skila, í stíl, frammistöðu og framsetningu.
Hér er fjallað um líf og feril skautadrottningarinnar alræmdu. Myndin varpar sviðsljósinu sérstaklega á hinn fræga atburð þegar ráðist var á listskautakeppandann Nancy Kerrigan í ársbyrjun 1994 og tilraun gerð til að fótbrjóta hana. Rannsókn lögreglunnar á árásinni á Kerrigan leiddi fljótlega í ljós að þar hafði verið að verki maður að nafni Shane Stant og hafði hann verið ráðinn til þess af lífverði og fyrrverandi eiginmanni helsta keppinautar Kerrigan, sjálfa Tonyu Harding, þeim Shawn Eckhardt og Jeff Gillooly. Með árásinni vildu þeir tryggja að Kerrigan heltist úr leik í samkeppninni um ólympíusæti í liði Bandaríkjanna sem keppa átti á Vetrarólympíuleikunum í Lillehammer í febrúar þetta sama ár.
Að frátaldri Robbie eru þau Sebastian Stan, Paul Walter Hauser og ekki síst Allison Janney stórkostleg í sínum hlutverkum, en Janney hreppti einmitt Óskarsstyttu fyrir leik sinn. Myndin fékk líka verðskuldaða tilnefningu fyrir bestu klippingu og hefði í raun átt að vinna – frekar en Dunkirk.
JACKIE (2016)

Það hafa alls konar myndir verið gerðar um John F. Kennedy Jr., hvort sem það er t.d. hin stórlega vanmetna Thirteen Days (2000) um Kúbudeiluna miklu eða JFK frá Oliver Stone sem fjallaði um eftirleikina og vangavelturnar eftir að hann var myrtur. Í kvikmyndinni Jackie fáum við að fylgjast með eiginkonu hans og allt kaosið í kjölfar alræmda morðsins. Natalie Portman fer með lágstemmdan en kröftugan lítinn leiksigur sem Jackie Kennedy í mynd sem gerist rétt fyrir og dagana eftir morðið þegar hún, börnin hennar, starfsfólk Hvíta hússins, bandaríska þjóðin og heimsbyggðin öll syrgði forsetann.
Þarna gefst færi á að segja söguna af því hvernig Jackie tókst á við endalausan hávaða á meðan hún gerði sitt besta til að halda andliti og sýna úr hverju hún var gerð. Það er léttur Aronofsky-bragur á framsetningunni (enda einn af framleiðendum myndarinnar) og það harmónerast bæði innileg næmni og stigmagnandi svellköld streita. Sama hverjar kringumstæðurnar eru, þá skilur það alltaf eftir langvarandi opið sár þegar fjölskyldumeðlimur eða maki er bráðkvaddur og Jackie býður upp á athyglisverðan glugga inn í sorg og seiglu á meðan áreitið stoppar ekki.
Má þess einnig geta að Jackie er fyrsta kvikmyndin í þemaþríleik leikstjórans Pablo Larrain um íkonískar konur 20. aldarinnar. Hinar tvær fjölluðu um Díönu prinsessu (leikin af Kristen Stewart) og óperusöngkonuna Mariu Callas (Angelina Jolie).
LAWRENCE OF ARABIA (1962)

Líklega er erfitt að toppa elskulega Arabíu-Lawrence ef spurt er um stærstu epíkina í formi ævisögumyndar. Myndin er byggð á ævi T.E. Lawrence og bók hans frá árinu 1926. Fjallað er um reynslu hans í héruðunum Hejaz og Sýrlandi í Tyrkjaveldi á tíma fyrri heimsstyrjaldarinnar, einna helst þátttöku hans í uppreisn Araba gegn Tyrkjum. Myndin leggur áherslu á tilfinningabaráttu Lawrence í tengslum við stríðið, sjálfsmynd hans og togstreituna á milli tryggðar hans við Bretland annars vegar og við nýja félaga hans í arabísku ættbálkunum hins vegar.
Og tekur kvikmyndin skáldaleyfi með sumt? Heldur betur!
En hvílíka kvikmyndin samt! Vönduð, glæsilega unnin, íkonísk á alla vegu og bara heilt yfir með magnaðri verkum sem hægt er að njóta á risatjaldi.
OPPENHEIMER (2023)

Karakterstúdía og dramaþriller. Áhorfandinn fær að kynnast meingölluðum einstaklingi í gegnum hans verkferla, aðferðafræði og afrek, ef svo má segja. Cillian Murphy túlkar J. Robert Oppenheimer sem þrívíðan og fáránlega breyskan einstakling sem ekki er endilega ætlast til að fólk haldi með, heldur í staðinn er markmiðið að varpa ljósi á að skilja hvað lætur manninn tikka. Myndin er brotin upp í tvo mismunandi frásagnarstíla, svokallað ‘subjective’ sjónarhorn (sem er í lit) og ‘objective’ hlutann (í svarthvítu) þar sem rýnt er meira í staðreyndir í stað þess að gefa innsýn í tilfinningar mannsins og heilabú. Strúktúrinn og tæklunin væri venjulega ekki til gríðarlega vinsælda hjá áhorfendum eða Óskarsverðlaununum, en kaldhæðnislega tékkaði Oppenheimer í nákvæmlega þau box, en það er sjálfsagt vegna þess að Christopher Nolan stóð á bak við hana.
PHILOMENA (2013)

Eilífðardrottningin Judy Dench leikur hina rammkaþólsku Philomenu Lee, kölluð Phil, sem verður ólétt á unglingsárunum þá búsett á Írlandi í byrjun sjötta áratugarins. Hún er send í klaustur, enda „fallin“ kona, sonur hennar er sama og hrifsaður af henni þriggja ára að aldri og seldur til Bandaríkjanna til ættleiðingar. Henni er talin trú um að ekkert sé athugavert við þetta og því grimmt haldið að henni að hún þurfi áfram að gjalda fyrir „mistök“ sín í garð trúnnar. Fimmtíu ár líða og Phil hefur margoft reynt að leita sonar síns en án árangurs. Þá kynnist hún léttfúla blaðamanninum Martin (Steve Coogan), sem verður strax gripinn af sögu hennar og reynir að hjálpa henni við leitina, og í leiðinni skrifa hina ótrúlegustu mannlífssögu. Saman ferðast þau til Bandaríkjanna sem vonandi endar eins vel og Phil þráir, og áhorfandinn.
Ég get ekki ímyndað mér hversu margar sannar sögur sem þegar hafa verið gerðar að sykurpúðamyndum hefðu getað orðið að einhverju sígildu ef tónninn væri eins frábær og hér. En burtséð frá því er þessi mynd einfaldlega of sorgleg, of fyndin og alltof hjartnæm til þess að vera afskrifuð sem eitthvað annað en skyldugláp á sviði sínu.
PRISCILLA (2023)

Skítt með Elvis-myndina frá Baz Luhrmann sem gaf takmarkaða innsýn þó heildin hafi verið líflega stílíseruð; Stúdering Sofiu Coppola á sögunni um Elvis frá sjónarhorni Priscillu Presley er miklu bitastæðara og marglaga verk. Minni glamúr, minna umfang en dýpra og mannlegra innlit. Áhorfandinn fylgist með Priscillu sem unglingsstúlku þegar hún fyrst hittir rokkstjörnuna og setur fókusinn allan á náið en í senn stormasamt samband þeirra og enn fremur einangrun hennar; hvernig Elvis var gerólíkur opinberu sviðsútgáfunni af sjálfum sér og hvernig alls konar komplexar sem einkenndi þeirra dýnamík.
Cailee Spaeny er algjörlega meiriháttar í titilhlutverkinu og Jacob Elordi tekur miklu minimalískari en skapstærri snúning á Elvis heldur en Austin Butler gerði. Myndin kom út ári eftir að vinsæla Elvis-myndin sópaði til sín seðlum og lofi áhorfenda en í meira ídeal tímalínu hefði þessi áhrifaríka mynd frá Coppola vakið meiri og verðskuldaðri athygli. Priscilla er uppfull af nánd og núans og gæti vel verið besta mynd Coppola síðan Lost in Translation. Eins og oft gildir um hennar filmógrafíu er þetta ekki tempó sem hentar öllum, en samt sem áður þess virði að gefa séns. Ekki er það slæm hugmynd heldur að ‘double feature’ með þeim báðum, þar sem Luhrmann myndin hoppar algjörlega yfir akkúrat punktana sem Coppola einblínir á með þessari mynd.
RABBIT-PROOF FENCE (2002)

Hér er einfaldlega bara kröftug saga sem sögð er með einföldum en öflugum hætti. Það er oft þunn lína á milli biopic-myndar og sannsögulegrar dramamyndar sem fangar ákveðinn atburð eða tímabil. Rabbit-Proof Fence fær samt að eiga erindi í þessa upptalningu enda ótrúlega vönduð og vel gerð mynd frá Philip Noyce, sem er í senn langbesta myndin hans.
Myndin gerist í vesturhluta Ástralíu árið 1931. Á þeim tíma var það stefna bresku nýlenduherranna að aðskilja kynblendinga frá frumbyggjum. Hér kynnumst við Molly Craig, systrum hennar og frænku sem flýja undan yfirvöldum. Þær ganga í norðurátt í marga daga og elta girðingu sem er gerð til að halda kanínum frá byggðinni.
Áhorfandinn fær þarna að glugga inn í merkilegan tíma og áhrifaríkar raunir einnar fjölskyldu sem vildi bara fá að lifa lífi sínu án truflana. Myndin er byggð á bók eftir dóttur Craig og gefur átakanlega, hreinskilna og spennandi innsýn í líf hennar og fjölskyldumeðlimi hennar. Ef fólk hefur ekki hugmynd um hver Molly Craig var, þá er allavega erfitt að gleyma henni að myndinni lokinni.
STEVE JOBS (2015)

Niðurstaðan er skýr. Á stuttum tímma voru gerðar tvær mismunandi kvikmyndir um Steve Jobs; önnur var grútléleg ‘hápunktafroða’ með Ashton Kutcher en hin taugatrekkjandi stúdering á manninum sem sett var fram með þremur löngum senum/þáttum, sem gerast á þremur mismunandi tímapunktum í lífi Jobs. Hver hluti einblínir á aðdraganda vörukynningu og hvernig samspil frumkvöðulsins var við staffið sitt, vini og óvini. Handritið frá Aaron Sorkin nær að segja okkur allt um (býsna óviðkunnanlega) manninn í sviðsljósinu og þau mynstur sem endurtekið fylgdu honum. Það er þvílíkur púls á þessari mynd og ekki síður vegna þess að Danny Boyle hleður heilmikla orku í verkið svo úr verði frískandi samtals-tryllir.
Stórkostleg kvikmynd sem er bæði með betri myndum Boyles og vanmetnari Sorkin-verkunum. Myndin lenti samt með litlum hvelli í ljósi þess að hún átti skammt líf og merkilega fáir virðast enn í dag hafa séð hana.
Sennilegt er að titillinn hafi ekki kveikt á miklum áhuga. Sem er alveg skiljanlegt.
*Talandi um gæði. Hér eru fleiri framúrskarandi:
12 Years a Slave (2013)
Amadeus (1984)
The Assassination of Jesse James
by the Coward Robert Ford (2007)
Blonde (2022)
Capote (2005)
Der Untergang (2004)
The Favourite (2018)
Frost/Nixon (2008)
Heavenly Creatures (1994)
The Insider (1999)
I Swear (2025)
La Vie en Rose (2007)
Malcolm X (1992)
Persepolis (2007)
The Pianist (2002)
Raging Bull (1980)
Schindler’s List (1993)
The Social Network (2010)
What’s Love Got to Do with it (1993)
The Wind Rises (2013)
…og hérna koma biopic-myndir sem ber að forðast:
Alexander: TC (2004)
Amelia (2009)
Back to Black (2024)
A Beautiful Mind (2001)
Beyond the Sea (2004)
Diana (2013)
Gotti (2018)
Nina (2016)
J. Edgar (2011)
Jobs (2013)








































































































































































































