Stefán Atli Rúnarsson er markaðssérfræðingur og séní á sviði gervigreindar með ómælanlega ást á fyrstu tveimur bíómyndunum í Back to the Future-þríleiknum.
Við Kjartan stóðust ekki mátið að bjóða honum í stúdíóið og renna léttilega og létt skemmtilega yfir ævintýrin hjá Marty McFly, Doc Brown og vinum – og þessi allsvakalegu áhrif sem ‘Bobbarnir’ (Gale og Zemeckis) höfðu á poppkúltúrinn.
Þá er gráupplagt að smella sér í Nike-skóna, botna bensíngjöfina og hverfa aðeins aftur til fortíðar ‘Aftur til framtíðar’ myndanna stórvinsælu. Einnig dúkka upp skrautlegar baksviðssögur og stúderingar á framtíðinni, tækni og gervigeind.
(og ath.! Ofangreindur texti var skrifaður án aðstoðar gervigreindar…)



Leave a Reply