Tómas Geir Howser er leikari á uppleið í lífinu og hefur marga fjöruna sopið á stuttum tíma á ferli sínum. Undanfarin ár hefur hann verið búsettur í London en við Bíófíklarnir vildu ólmir grípa í hann á meðan hann heimsótti litla Ísland og leyfa honum að velja mynd til umfjöllunar.
Tómas ákvað þá að velja líflegu Óskarsmyndina sem heitir að fullu nafni ‘Birdman or (The Unexpected Virtue of Ignorance)’ þar sem Michael nokkur Keaton sýnir stjörnuleik ásamt fleirum kunnuglegum.
Ég, nafni mig og Kjartan ræðum þessa ‘fever-dream’legu’ kvikmynd og marga hverja kosti hennar, orðspor, einkenni, stílbrögð og þá ekki síður Óskarinn almennt og þá bransapólitík sem fylgir þeim verðlaunum.
Komið ykkur á loft og hlustið á herlegheitin.







































































































































































































