Eitthvað grasserar á Glerársöndum og margir búast við svörum. Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður og undirritaður bíófíkill grandskoða sjónvarpsþættina Svörtu sanda frá ólíkum hliðum.Þættirnir voru framleiddir af Glassriver og sýndir á Stöð 2 og víða um heim.
Vangaveltur neytandans koma ferskar að skaparanum, en bíónördið kemur með getspár, kenningar og fyrirspurnir á meðan þeir í sameiningu varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónurnar, þemu og myndlíkingar.Þá er líka stutt í sturlaðar staðreyndir á bakvið gerð seríunnar og um kvikmyndagerð eins og hún leggur sig.
Við Álfheiður stúderum undirliggjandi kraumið hjá karakterum í þessari lotu og ekki síst óvænt gestahlutverk þar sem leikstjórinn varð ögn ‘starstruck’.
Heimur Anítu farinn að hringsnúast sem aldrei fyrr á meðan áframhaldið veltur á því hvort náunganum sé treystandi og enn fremur hvort sannleikurinn geti bætt úr hlutum eða valdið frekari á verstu stundu.
Baldvin segir frá földum konfektmolum sögunnar, „föndurpitsu“ og rifjar einnig upp hvernig ferlið gekk fyrir sig að skjóta sjónvarpsseríu þegar COVID-faraldurinn var nýfarinn að herja á heimsbyggðina.