„Multipass…“

Ein ef ekki langdýrasta stórmynd síns tíma sem framleidd var utan vestræna markaðsins, beint úr hugarheimi franska pervertsins Luc Besson. The Fifth Element er algjör sci-fi steik með Bruce Willis í fantaformi og í senn spennumynd sem markar þá fyrstu með Millu Jovovich í einu aðalhlutverkinu að ógleymdum Gary Oldman í aldeilis fjörugum fíling. Síðan er að sjálfsögðu hinn ómótstæðilegi Ruby Rhod sem gleymir ekki að gæða myndarömmunum meira líf með glensi sínu og stjórnlausri greddu.

Við Kjartan og Atli Freyr rifjuðu upp þessa einkennilegu ævintýramynd og hvað það er sem fær hana til að skara fram úr mörgum öðrum partímyndum aðalstjörnunnar; sum sé Willis.

Flokkar: ,

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading