„Horfið á The Thing. Ekki horfa á The Thing (2011)“. – Friðrik Önfjörð

Bandarískur vísindaleiðangur til Suðurheimskautsins er truflaður af hópi trylltra Norðmanna sem elta og skjóta hund. Þannig hefst brillerandi sci-fi hryllingsmyndin The Thing frá John Carpenter. Vill þannig til að þetta er ein af allra uppáhalds tveggja fastagesta Bíófíkla.

Við Kjartan tókum á móti Atla Frey og Frikka til að ræða þessa költ-klassík ræmu algjörlega í ræmur, jafnframt upprunalegu söguna og nákvæmlega hvað það er sem gerir The Thing svona ótrúlega töff skrímslamynd.

Óhjákvæmilega ræða þeir líka prequel-myndina The Thing (2011), tölvuleikinn The Thing og stuttmyndirnar Thingu og The Things.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading