Dembum okkur í blautustu stórmynd allra tíma.

Hanna Tara Björnsdóttir á sterk og mikil tengsl við stórmyndina Titanic (og hún er fjarri því að vera ein á báti þar), en það hófst þegar hún var níu ára gömul. Hún er gestur okkar að sinni.

Það segir sig kannski sjálft en Titanic er ein stærsta mynd allra tíma og var algjört aðsóknarfrávik á einmitt sínum tíma; bíómyndin sem sameinaði kynslóðirnar með rómantík, hasar og harmleik og kom James Cameron endanlega á kortið sem masterklassa klikkhaus.

En kraftur myndarinnar er umdeilanlega óumdeilanlegur. Hvers vegna, er vert að kanna.

Best að henda sér á flekann eða í björgunarbátana og hlera súmmeringuna á þessari títanískt vinsælu og sögulegu stórslysaepík.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading