Ef það er til eitthvað steiktara frá leikstjóra The Lord of Rings-myndanna heldur en Braindead eða jafnvel Bad Taste, þá er það klárlega Meet the Feebles! Hér er enginn afsláttur veittur og öll velsæmismörk eru svo gott sem ósýnileg. Það er að minnsta kosti öruggt að aldrei hefur áður eða síðan sést eitthvað í líkingu við hana. Við viljum vita hvers vegna….
Við Frikki settum upp prakkaralegt glott og völdu þessa kvikmynd með séróskir um að Kjartan fengi ekkert að kynna sér né lesa sig til um hana fyrirfram, að hann þurfti sumsé að horfa á hana algjörlega blindandi. Þekkjandi Kjartan eru viðbrögðin klárlega skrautleg og umræðan verður svoleiðis sprellfjörug að Atli Freyr Bjarnason stóðst heldur ekki mátið að vera með í öllu glensinu.
Þetta er Meet the Feebles frá Peter Jackson, og hún er vægast sagt ein spes bíómynd. Hlustandi er vitaskuld hvattur til að taka þátt í smekkleysunni.



Leave a Reply