Matt Reeves
-
Mögnuð, áferðarmikil og stílísk nálgun á efninu og fullkomlega trúverðugur, sjúskaður og sturlaður vinkill á brjálæðislega svölum spæjara-Batman.
-
Fullkomið dæmi um hvernig sjónarspil og rándýrar brellur geta þjónað sögu og persónum, með hasarinn í aftursætinu. Brilliant stríðsævintýri með hausinn skrúfaðan fast á búknum.
-
Myndin er grípandi vegna þess að sagan vekur mann lúmskt til umhugsunar og festir sínar tennur við dýrslegu og mannlegu þættina.
-
Vel er farið með efnilega sögu sem er truflandi en í senn dálítið skuggalega hjartnæm.









































































































































































































