Hér er mynd sem var heldur betur á undan sinni samtíð og var gefin út áður en raunveruleikasjónvarp fór að yfirtaka heiminn. The Truman Show er alveg einstaklega hressandi sci-fi “hryllingur” þar sem allt angar af tilgerð í umræddum þætti nema aðalpersónan. Þetta markaði í raun fyrsta dramatíska hlutverk gúmmíkarlsins Jim Carrey og er býsna athyglisvert hvað þessi kvikmynd hefur náð að eldast vel.
Gestur þáttarins er Vilmundur Örn Gunnarsson, forfallinn bíófíkill og einn af óteljandi aðdáendum þessarar myndar. Saman förum við þrír yfir mannlega þáttinn í Truman-þættinum, undirliggjandi óhugnaðinn, sjarmann og makalaust frumlegu framvinduna.
Ætli einhver sé að fylgjast með? Hvað gerist ef einhver í stúdíóinu veit of mikið? Verður sá einstaklingur kannski numinn á brott?
Svörin fást í hlustuninni, svo lykilatriði er að koma sér vel fyrir í baðkarinu.



Leave a Reply