spoof
-
Stærsta grínið er sennilega sú huggandi tilhugsun að þessi bíómynd mun eldast eins og mjólkurglas undir logandi sumarsól á næstu misserum.
-
Myndin er absólút í stíl við hinar þrjár; í keyrslu, flæði, ofkeyrslu þvælunnar og þeirri óforskömmuðu löngun að bauna út eins mörgum fjölbreyttum bröndurum og hægt er að pakka undir 90 mínútur.
-
Það þýðir ekkert að reyna að meðtaka myndina sem neitt annað en frásagnardrifna sketsamynd.
-
Scary Movie 5 hefur ekki eins vond áhrif á andlegu heilsuna og flest allt Friedberg-Seltzer hlandið, en á köflum kemst hún ferlega nálægt því, og það er nóg!








































































































































































































