Sumir eiga sér… kink (?)…

Christopher Nolan hefur getið af sér ýmsar merkilega fjölbreyttar myndir en hann hefur samt sem áður haldið sig við eftirtektarverð mynstur. Kvikmyndir sem hann hefur leikstýrt hafa í merkilega flestum tilfellum fylgt vissri þemauppskrift; tryggð, siðgæði barátta gegn yfirvofandi hindrunum. Nolan elskar að spila með tíma, strúktúr og menn í annaðhvort flottum jakkafötum eða töff búningum almennt. Vanalega er aðalpersónan stóískt mikilmenni sem veður í hverja erfiðu áskorunina á eftir annarri til að A) gera heiminn að betri stað, eða B) komast heim í normalt líf. Eða C) hvort tveggja.

Sterkustu dæmin í A-flokki eru The Prestige, Tenet og Oppenheimer. 
Í B-flokki væru það Memento, Insomnia, Inception, Dunkirk og The Odyssey. 
Í flokki C má nefna Interstellar og Batman-myndirnar.

‘Dauða eiginkonan’ er þó klárlega með þekktari ‘trópum’ Nolans; þar sem eiginkona eða kærasta aðalpersónunnar lætur lífið til að annaðhvort koma sögunni sjálfri af stað eða þrepa upp dramatíkina. Eins og svo oft hefur áður verið nefnt. þá þykir þetta mynstur sérlega furðulegt í ljósi þess að Emma Thomas, eiginkona Nolans, hefur framleitt allar myndirnar hans.

Vissulega er auðvelt að færa rök fyrir því að spúsumissir sé sígild/ódýr leið fyrir lykilpersónu gefinnar sögu að ganga berserksgang, sérstaklega þegar þessi þróun kemur upp úr miðbiki kvikmyndar. Það er fátt sem segir ‘Passið ykkur, illmenni’ eins og söguhetja sem hefur engu að tapa eftir að eiginkonu/kærustumissirinn hefur átt sér stað.

En Nolan hefur einmitt notað þetta mynstur í alls konar formum. Svo sem…

ATHUGIÐ AÐ HÉR VERÐA ÞUNGIR SPILLAR FYRIR ALLAR NOLAN-MYNDIRNAR.


FOLLOWING

Dauði ljóshærðrar konu (sem er einfaldlega kölluð ’The Blonde’) tengist stærra plotti bíómyndarinnar.


MEMENTO

Hér hangir öll sagan á hefndinni. Leonard Shelby (Guy Pearce) hefur helgað lífi sínu í að finna manninn sem nauðgaði og drap eiginkonu sína og olli honum slysi sem varð til þess að hann getur ekki eignast nýjar minningar. Eiginkonan er ekki bara hvatinn og stærsti hluti baksögunnar, heldur lumar handritið á sér loka-tvisti sem tæknilega séð endurskrifar söguna og drepur konuna í annað skiptið…

Snilldarmynd samt.


INSOMNIA

Al Pacino leikur heldur betur gallaða og bugaða löggu sem óvart (eða hvað?) drepur ‘partnerinn’ sinn (jú jú, teljum það rétt svo með, þó svo að kolleginn sé karlkyns). Auk þess er Pacino að reyna að hafa uppi á morðingja (Robin Williams) sem drap óvart (eeeeða hvað?) kornungu hjásvæfu sína.


BATMAN BEGINS

Þessi mynd er reyndar smávægileg undantekning. Ekki nema það sé tekið með að Thomas Wayne sé myrtur sökum þess að reyna að vernda eiginkonu sína, Mörthu Wayne, sem er síðan hvort sem er drepin. Þá og þannig verður Batman til.


THE PRESTIGE

Þessi mynd fjallar um erjur á milli tveggja töframanna (Hugh Jackman & Christian Bale), sem stigmagnast eftir að annar þeirra er sakaður um að hafa óbeint drepið eiginkonu hins (Piper Perabo). Þá þrepast ágreiningurinn upp á næsta stig. En síðan af ótengdum ástæðum ákveður önnur eiginkona (Rebecca Hall) seinna í sögunni að svipta sig lífi.


THE DARK KNIGHT

Hinn sögulega stórkostlegi Jóker í túlkun Heaths Ledger gefur Batman kost um að velja á milli saksóknarans Harvey Dent (Aaron Eckhart) og kærustu hans, Rachel Dawes (Maggie Gyllenhaal), konunnar sem Batman/Bruce Wayne er sjálfur ástfanginn af. Batman er reyndar haldinn þeim ranghugmyndum um að Rachel muni hefja ástarsamband með honum þegar hann er búinn að gegna rullu sinni sem myrki riddari Gotham-borgar. Skemmst er að segja frá því að hann velur Rachel, en handritið hefur minni not fyrir hana heldur en Harvey Dent, svo hún deyr.

Og ef út í það er farið, þá var hún næstum því drepin í Batman Begins…


INCEPTION

Hér er á ferðinni mjög sérkennileg ‘heist’ mynd sem gerist í bókstaflegum draumaheimum þar sem Leonardo DiCaprio og vinir hans reyna að framkvæma næstum því ómögulegt verkefni. Það sem gerir verkefnið að vísu miklu erfiðara er að látin eiginkona aðalpersónunnar (Marion Cotillard) herjar á þessa drauma og stofnar verkefnið í hættu. DiCaprio leikur einmitt breyskan einstakling sem vill ekkert meira en að komast heim til barnanna sinna og ná sáttum við sjálfan sig fyrir að hafa óvart dregið eiginkonu sína til dauða.


THE DARK KNIGHT RISES

Þessi mynd er á gráa svæðinu. Batman/Bruce Wayne kemst þó að því að ‘hjásvæfa’ hans (Marion Cotillard… aftur) er aðalskúrkurinn í sögunni. Hún deyr þá að sjálfsögðu eftirminnilega. Kannski aðeins of eftirminnilega, enda með umdeildari atriðum myndarinnar.


INTERSTELLAR

Enn ein dauða eiginkonan sem skilur eftir tómarúm í hjarta og lífi karlmanns við upphaf sögunnar. Aðalkarakter myndarinnar (þ.e. Matthew McConaughey) er alveg úti á þekju sem einstætt foreldri áður en hann svarar æðri köllun um að hypja sig út í geiminn til að bjarga mannkyninu.


DUNKIRK

Viti menn, hér eru varla neinar konur í myndinni…

Öh… Framför?…


TENET

Aðalpersóna myndarinnar (sem heitir bara ‘Aðalpersónan’…) reynir að bjarga varnarlausri konu (Elizabeth Debicki) frá ógeðfelldum manni (Kenneth Branagh) sem lemur hana reglulega og vill hana feiga ef hún neitar að vera þæg.


OPPENHEIMER

Engin dáin eiginkona að þessu sinni, heldur nú er það fyrrverandi kærasta og í senn viðhaldið (Florence Pugh) hjá titilpersónunni sem deyr á mikilvægum tímapunkti sögunnar. Hún sviptir sig lífi.


THE ODYSSEY

Þessi mynd er einkennilega stikkfrí í þessum efnum og mynstrum. Ekki nema það teljist með að Penelope (Anne Hathaway), eiginkona Ódysseifs (Matt Damon), er mest alla myndina að deyja úr leiðindum á meðan hún bíður óþreyjufull eftir endurkomu mannsins síns.

Flokkar: ,

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading