Er allt neikvæða umtal myndarinnar kannski bara kjaftæði og leynist hér raunverulega dásamleg jólaperla?

Katla Marín Þormarsdóttir er upprennandi handritshöfundur og fjölsnillingur sem vildi sérstaklega fá að taka fyrir jólamyndina sem fólk annaðhvort er (a.m.k. Í seinni tíð) farið að hata að elska, eða það elskar að hata.

Það má mikið og lengi deila um það hvernig Love Actually eldist, svona í bland við óneitanlegu styrkleika myndarinnar, en við Katla og undirritaður köfum grimmt ofan í ásetning Richard Curtis með þessari froðuepík sinni.

Er allt neikvæða umtal myndarinnar kannski bara kjaftæði og leynist hér raunverulega dásamleg jólaperla? Eða er orðspor myndarinnar jafnvel komið svolítið út af sporinu, þannig að eftir stendur glansandi veisla sem validerar hinar vafasömustu hegðanir?

Könnum málið. Með slaufu.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading