Leikarinn og bíófíkillinn Viktor Árni Júlíusson er maður með smekk fyrir góðri vitleysu og hikaði hann ekki við að velja fyrstu myndina um ofur(aula)lögguna Frank Drebin hjá ‘Police Squad’.
Það sem við tekur er kostuleg könnun okkar Viktors á því hvers vegna í ósköpunum Kjartan fílaði ekki þessa mynd, en víðara mengi spoof-mynda er vissulega líka á boðstólnum.
Þá smellum við lögguljósinu á og förum Beint á ská.









































































































































































































