Clayface gengur upp með hnitmiðuðu handriti, öflugum leikurum, lúmskum núans og prakkaralegri stemningu fyrir ýmis konar léttum viðbjóði.

Það tók Marvel Cinematic Universe heiminn heil 16 ár til að komast á þann stað að hafa bæði bolmagnið og þorið í að útbúa ofurhetju- eða myndasögumynd sem væri gíruð að fullorðnari áhorfendum. Það var auðvitað stórhittarinn Deadpool & Wolverine, sem fylgdi þá í kjölfar fordæmisins sem 20th Century Fox hafði sett með þorið að ganga lengra með fyrri myndum sömu karaktera, bæði þá fyrri Deadpool-myndirnar og hina goðsagnarkenndu Logan.

Í akkúrat þessu samhengi er nýi DCU heimurinn undir taumi James Gunn og Peters Saffran alls ekki lengi að stíga út fyrir fjölskylduvænu línurnar. Hryllingstryllirinn Clayface er aðeins þriðja bíómyndin í fullri lengd (á eftir Superman og Supergirl) frá þessu nýja DC merki, en strax þarna eru komnar þrjár gerólíkar myndir á boðstólinn. Því er vægast sagt kærkomið að sjá lágstemmdan og heldur ódýran body-horror um eitt furðulegasta Batman-illmennið, eða réttar sagt; myndasögumynd um gallaða og tragíska sögupersónu þar sem framvindan svipar lauslega til kvikmynda á borð við The Fly og Darkman (með líklegast smá skvettu af Abre Los Ojos/Vanilla Sky), og ofbeldið fylgir þar með í mátulegum mæli.

Það sést langar leiðir að Clayface er ekki gerð fyrir dæmigert fjármagn ofurhetjumynda, en minimalisminn er myndinni í hag. Hérna sameina þeir Mike Flanagan og James Watkins (Speak No Evil… en þá rímeikið) krafta sína til að botnkeyra skítuga andrúmsloftið og karakterdýnamíkina ofar öllu. Söguþráðurinn er DC og Batman-aðdáendum kunnugur að mestu en fyrir nýgræðingana segir hér frá upprennandi stórstjörnunni Matt Hagen (Tom Rhys Harries með þvílíka innkomu!), sem lifir í blóma ferils síns og með bjarta framtíð fyrir sér sem Óskarstilnefndur leikari. En eins og kann að koma fyrir í heimi fallega og fræga fólksins, þá getur eitt örlagaríkt djammkvöld gjöreyðilagt allt saman. Á meðan fagnaðarskralli stendur, ákveður Hagen að slá sér kæruleysislega upp með kærustu mafíósa. Áður en leikarinn veit af því er allt lífið komið á hliðina; Matt er orðinn afmyndaður eftir hrottalega árás og réttarkerfið í Gotham-borg virðist litlu skila, frekar en venjulega. Matt er auðvitað til í að gera hvað sem er til að endurheimta glamúrlíf sitt og fallega andlitið sitt, og þegar leið hans liggur að vísindakonunni Caitlyn Corr (Naomi Ackie, alveg upp á sitt besta) er útlit fyrir því að hann geti endurheimt dýrðina sína aftur. Vandinn er tvenns konar; þau Matt og Caitlyn eru að gera tilraunir með ókunna nanótækni, og hægt og bítandi fer leikarinn að þrá eitthvað sterkara heldur en að endurheimta líf sitt, og það eru makleg málagjöld gagnvart öllum sem eyðilögðu líf hans.

Eins og góðum body-horror myndum sæmir, er ótrúlega auðvelt að sogast inn í atburðarásina og stigmögnunina í Clayface. Þegar áhorfandinn kynnist Matt leynist þarna viðkunnanlegur og krúttlegur lítilmagni sem tilheyrir annars vegar ógurlega yfirborðskenndum heimi og það sést strax langar leiðir að leikarinn er allt annað en fullkominn. Eftir því sem Matt fer að þrjóskast meira og meira með tækni sem bæði rakleiðis lagar og í senn fokkar upp útliti hans, fara gallar hans smám saman að endurspegla yfirborðið. Þegar reiðin og hégóminn nær yfirhöndinni hjá sögupersónunni er orðið ljóst að Clayface er ekki hver önnur andhetjumyndin, heldur stolt og skammarlaus skúrkamynd. Hún sýnir margfalt betur hvernig hægt er að útfæra premísu sem titlar eins og Joker, Venom, Morbius eða jafnvel Gunn-framleiddi horbjóðurinn Brightburn hafa stórlega klikkað á.

Clayface rúllar vissulega best á spennandi framvindu en þó er það mest megnis samleikurinn hjá Tom Rhys Harries og Naomi Ackie sem gefur undirliggjandi sögunni ákveðinn slátt eða púls. Harries sér um að vera harmi slegna og mölbrotna hjartað í sögunni á meðan Ackie fær það verkefni að vera hálfgerða sálin í verkinu, ef ekki þá viðkunnanlegi siðgæðisvitinn. Það er ákveðin næmni og nánd sem myndast í senum þeirra beggja sem flytur myndina á æðra stig og gerir hana að einhverju meiru en bara formúlukenndri ‘Batman-lausri skúrkamynd úr DC-heiminum.’ Áhorfandinn þarf varla einu sinni að vera með lágmarksvit eða áhuga á myndasögum til að límast alveg hispurslaust við Clayface. Hún svínvirkar sem ýktur drama- og hefndartryllir í svokallaðri miðlungsstærð.

Handrit Flanagans er (kaldhæðnislega) frekar yfirborðskennt í æpandi metafórum en Watkins skilur eftir rými fyrir núans í hljóðlátari senum á milli leikara sinna. Það breytir því að vísu ekki að myndin sprettir reglulega til lífs þegar ofbeldið er komið á fullt skrið eða minniháttar martraðarfóður yfirtekur sögupersónu myndarinnar (besta dæmið þar væri snargeggjaða senan í flugvélinni…). Það er reyndar alltaf góð regla í myndum um skúrka eða andhetjur að umkringja þær með miklu verri einstaklingum í hlutverki andstæðinga og það er lógík sem þessi mynd leikur sér miskunnarlaust að. Áhorfandinn verður svo gott sem samsekur í því að fyllast ánægju yfir því að sjá ‘nýja og endurbætta’ Matt Hagen vaða úr hverjum svikaranum í þann næsta.

Ef eitthvað er út á rennslið að setja, er það að myndin er eiginlega of fljót að toppa sig. Gleðin og afþreyingargildið nær absólút hámarki circa tíu mínútum áður en sagan nær sinni endastöð, en það er út af gjörsamlega geðbiluðum kafla sem gerist allur á næturklúbbi. Þar eru senur sem fljúga yfir allan mögulegan tilfinningaskala og nær ræman á þessum tímapunkti að skiptast úr því að vera skemmtilega steikt yfir í brútal, meinfyndin, eitursvöl, erfið, fáránleg, prakkaraleg og allt þar á milli eða umfram. Allur búturinn á þessum næturklúbbi er satt að segja heil fjögurra stjörnu skemmtun út af fyrir sig og myndin verður aldrei meira á lífi en þá. Allt sem fylgir á eftir þeim senum raðast upp í ágætlega fullnægjandi vendingu, en það mætti óneitanlega saka myndina um að þjást af vægum anti-klæmax. Að því sögðu er bláendirinn fullkominn.

Merkilegt nokk, þá geirneglir Clayface allt sem tengist sínu yfirborði; Útlit og kvikmyndataka gefur myndinni bæði eins konar sveittan ’70s brag ásamt litaleiðréttingu sem gefur andrúmsloftinu mjög stílíseraða og skítuga áferð. Tónlistin er fín, brellurnar þokkalegar og engum leikara er sóað í neinni aukarullu. Max Minghella er þó án efa sístur og hefur litlum krafti við sinn mikilvæga karakter að bæta. Annars er David Dencik þarna sérstaklega sterkur sem aðalillmennið Markos Szabo (og óhugnanlega lágstemmdur þar að auki) og þau Eddie Marsan, Joana Ribeiro og Joshua James skilja öll eitthvað eftir sig. Þess að auki er athugavert hvað langflestir leikararnir í þessari tilteknu bíómynd eru með minnisstæð og svipbrigðasterk andlit. En aldeilis hefur casting-director’inn unnið fyrir sínu kaupi – svona heilt yfir – og á jafnvel skilið góða hækkun.

Ef Clayface er skoðuð í stærra mengi þessarar nýju DC(U) myndaseríu er hún án nokkurs vafa sú öflugasta í röðinni til þessa, þó samanburður við forverana gæti verið ósanngjarn. Engu að síður, Superman 2025 reyndi að gera of mikið í einni mynd, Supergirl gerði ekki nógu mikið á meðan Clayface gengur upp með hnitmiðuðu handriti, öflugum leikurum, lúmskum núans og prakkaralegri stemningu fyrir ýmis konar léttum viðbjóði. Hvort hún eigi einhvern séns í gæði eða frumlegheit fyrirmynda sinna (einna helst The Fly og Darkman) er trúlega hæpið, en það að myndin geti verið nefnd í sama andardrætti án þess að það þyki vera vont lúkk, segir eiginlega ýmist jákvætt.

Í versta falli fullkomlega fínn inngangur krakka eða unglinga í áttina að því að betur kynnast hvað body-horror myndir hafa upp á að bjóða.