Leikstjórinn og handritshöfundurinn Martin McDonagh er mörgum kvikmyndaunnendum og ekki síst bíófíklum vel kunnugur, enda hefur filmógrafía mannsins kætt ýmsan með sótsvörtum húmor, prakkaralegu ofbeldi, lúmskri persónusköpun og hnífbeittum samtölum. McDonagh hefur að minnsta kosti gert garðinn frægan með titlum á borð við In Bruges, Three Billboards Outside Ebbing, Missouri og The Banshees of Inisherin.
Nú er komið að nýjustu viðbótinni í safnið hans; Wild Horse Nine.
Bíófíklar hóuðu í góðvini sína úr hlaðvarpinu Video rekkinn, skötuhjúin Ragnar og Hildi, til að deila dýnamíkinni við borðið í sannkölluðum McDonagh-stíl. Stefnir allt í einróma álit hvað þessa kvikmynd varðar eða er meiri núans og krítík í boði? Eða einfaldlega bara tómt en frussuskemmtilegt sprell þar sem fagnað er því með prýðum hvað félagarnir Sam Rockwell og John Malkovich eru mikið í essinu sínu. Eins og nú yfirleitt…
Þegar þessi þáttur er tekinn upp er íslenski nóvemberkuldinn farinn að segja vel til sín, þannig að hlustandi er hvattur til að ylja sér með kompaníi Video-fíkla (e. Bíórekkans?)…







































































































































































































