Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa.
Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Road leikjamyndanna.’
Viktor Árni Júlíusson fastagestur er dyggur aðdáandi Resident Evil tölvuleikjanna og gekk hæstánægður út af þessari mynd. Bíófíklar tóku honum og alls konar umræðum um Cregger, hinar bíómyndirnar og vörumerkið sama og fagnandi.
Ekki eru allir á sömu skoðun við borðið um óheflaða hæpið eða ótvíræðu gæði þessarar Resident Evil myndar, en það er heldur betur nóg til að róta í hvað varðar framsetningu, stíl og endalausu páskaegg myndarinnar.
Upp með byssurnar, hunsið hengilásin og tökumst á við þessa bölvuðu blóðugu vitleysu saman.







































































































































































































