Hver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum ‘Halloween’? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum?
Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu þínu? Hvaða trúður ætti helst ekki að vera í barnaafmæli? Hvað er það sem gerði Digger svona umdeilda og óvinsæla?
Og af hverju Kevin?!
Fyrir utan hentugt og spaugilegt hrekkjavökuþema þá vill svo skemmtilega til að hlustendur og notendur spjallvettvangs Bíófíkla á Facebook sömdu allflestar spurningarnar að sinni. Sumar þeirra mátulega pönnusteiktar og gallsúrar, og þá er það undir mönnunum við míkrafónana komið að svara þeim.
Í svokallaða heita- og gestasætinu er kvikmyndakeisarinn og reynsluþjarkurinn Þórarinn Þórarinsson, betur þekktur sem Tóti úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Tóti svarar þarna með prýðum í stúdíó Podcaststöðvarinnar með Atla Frey og Tomma þó vissulega gangi liðurinn út á það að aldrei eru nein rétt eða röng svör; Bara skemmtileg og leiðinleg svör!
Þú vilt heyra þetta sprell.









































































































































































































