Hver væri versta kvikmyndin til að talsetja á íslensku? Hvaða bíósería veitir ekki af því að vera tekin í gegn með ‘Evil Dead’-vinkli? Hvaða eintak í þekktum myndabálki væri ásættanlegt að gera ef hún væri skrifuð af gervigreind? Hvaða titlar eru endanlega ónýtir út af ofbeldisfólki?
Við Atli Freyr og Vilmundur Örn skoðum þessar sturluðu og helvíti súru spurningar ásamt fleirum í þessu tiltekna innslagi af spurningarleik Bíófíkla þar sem hvorki eru til rétt eða röng svör; aðeins gamanið sem gert er til að veita innsýn inn í smekk þeirra sem við mækana sitja.
Hlustandi er hvattur til að hlera þessa steik og svara í eigin kolli.



Leave a Reply