Hver væri besta myndin til að endurvekja Smell-O-Vision?

Eins og hlustendur kunna að vita, Súrt og svarað er kvikmyndatengdur spurningarleikur þar sem engin svör eru rétt eða röng. Þetta er eingöngu gert til flipps og fróðleiks enda frískandi leið til að betur kynnast kvikmyndasmekk gest.

Hugleikur Dagsson, fyrirmyndar- og atvinnunörd sem þarf vart að kynna, settist í heita sætið hjá okkur Kjartani þar sem markmið allra var að brjóta heilann, finna sniðugar tengingar eða svara t.d. nokkrum af neðangreindu spurningum:

Hvað er besta mómentið í verstu Spider-Man myndinni?

Hver væri versta myndin til að upplifa í 4DX?

Hvaða fantasíuheimur er mest truflandi ef þú ofhugsar hann?

Hver væri besta myndin til að endurvekja Smell-O-Vision?

En sú allra versta?

Hvaða kvikmyndaaðlögun er frábær þó svo að hún gjörbreytti source-material’inu?

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading