Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns.
Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum útfærslum, formum, litum og myndum, hefur aldrei verið gífurlegur hluti af íslenskum kúltúr en víða um heim hefur þetta vörumerki haldið stjórnlausri göngu í áraraðir og séð sinn skerf af lægðum og hæðum.
En vissulega skulu fullorðnir ekki gera kröfur um hágæðaefni þegar umrædda vörumerkið hófst með því að ‘stela’ óbeint frá annarri þáttaröð, og sérstaklega þegar hugmyndin gengur út á að kæta sykuróða krakkalinga og selja þeim gommur af leikföngum.
Bíófíklar buðu Vilmundi Erni Gunnarssyni aftur í stúdíó Podcaststöðvarinnar en hann átti hugmyndina að grandskoða mátt og mistök tveggja þekktustu Power Rangers-bíómyndanna, með áherslu á legasíu batterísins eins og það leggur sig. Í brennidepli er það sum sé Mighty Morphin Power Rangers: The Movie frá ’95, með léttri skimun á hundaskítinn frá 1997 sem kallast ’Turbo: A Power Rangers Movie.
Vilmundur og vinir eru heldur ekki sparsamir á steiktar og sturlaðar staðreyndir um Power Rangers í gegnum árin, harmsögur af leikurum þáttanna og – að sjálfsögðu – græðgina og nískuna í spottatogaranum Haim Saban. Þá er einnig spreytt sig í stóru málunum, eins og hvers vegna foringinn Zordon vill eingöngu safna til sín liðum unglinga og af hverju hann ákvað að búa til taugaveiklað vélmenni til að aðstoða sig í höfuðstöðvum sínum…
Fjórmenningarnir í settinu koma sér í stellingar, kalla út nöfn á risaeðlum með háfleygum hætti og rýna í umfjöllunarefni þar sem einn við míkrafóninn spyr réttilega að eftirfarandi spurningu; Er þetta nördalegasti þáttur Bíófíkla til þessa?
Og hvernig í heitasta helvítinu ná drengirnir að þræða Glæstar vonir og Leiðarljós inn í þetta umfjöllunarefni?







































































































































































































