Íris Árnadóttir, hryllingsnörd og söngnemi, er sest í stúdíóið með Bíófíklum til að ræða um og rýna í eina umtöluðustu (og að mati margra ógeðfelldustu) kvikmynd ársins.
Demi Moore og Margaret Qualley sýna báðar nýjar, beittari og djarfari hliðar á sér í stálhressum body-horror um útlitsdýrkun, frægð, einkennilega líkamsrækt og subbulega karlmenn. Þessi vægast sagt villta útrásarmynd eftir Coralie Fargeat hefur einfalda hugmynd sem skipar sér í margar svipmyndir og nú er komið að því að skoða hvað hérna er í boði.
Spennið beltin, spælið eggin og sperrið upp eyrun. Hljóð er sögu fríkaðri.



Leave a Reply