Yorgos Lanthimos, grískur furðufugl og mannfræðingur í anda, er kominn á skurðarborð Bíófíkla þar sem markmiðið er að skoða hvaða fimm titlar frá kauða bera mest af. Lanthimos hefur farið yfir víðan völl, frá búningadrama til vísindaskáldskaps og alls þess á milli; sennilega hvað þekktastur fyrir titlana Dogtooth, The Favourite og Poor Things.
Íris er sest með okkur Bíófíklum og bera allir saman sínar (fræðilega…) ólíku bækur. Við skoðum í senn hvað það er sem einkennir þennan grísk ættaða ‘auteur’ sem á rætur sínar að rekja til leikhússins og hefur gegnumgangandi gífurlegan áhuga að kreista fram krefjandi frammistöðu úr leikurum sínum, sér í lagi Emmu Stone.
Þess ber líka að geta að undirritaður ákvað að leggja í galna áskorun, sem lýsir sér í refsistilgangi til að reyna minnka enskusletturnar sínar.



Leave a Reply