Category: actual blogg
-
Þetta er allt algjör gríska fyrir mér.
-
Fæðing kvikmyndarinnar var erfið, vægast sagt.
-
„Æ, þú ert svona nörd, er þaggi?“ Klikkar aldrei. Oft þegar maður heyrir orðið nörd þá má stundum lesa í tóna eins og talað sé sterklega niður til einstaklings X. Í fyrstu er svo sem eðlilegt að hugsa beint til ljótra lonníetta, geislasverða, myndasögustafla (bæði áþreifanlega og safnaða upp í spjaldtölvum), hlutverkaspila, um létta veruleikafirringu…
-
„Netið er bara bóla,“ lét einn af okkar frægustu íslensku sviðs- og skjáleikurum hafa eftir sér – minnir mig – í símaauglýsingu. Ég nefni ekki hver en röddin er fræg fyrir að vera rótuð niður í skeggríkri og sexí karlmennsku. Nei, ekki Ólafur Darri. En með vaxandi krafti tækniþróunar og púlsandi eiginleikum sínum sé ég…
-
„You have this idea that you’d better keep working otherwise people will forget. And that was dangerous.“ Ég man ekki alveg hvenær það byrjaði, hvort það hafi verið þegar ég var hálfnaður með að lesa 3,008 Twitter-færslur eða Facebook-statusa en gærkvöldið markaði fyrsta skiptið þar sem ég – á minni lífsleið – þar sem ákveðnir…
-
ATH. Játningin er LÖNG að sinni, en þetta er samansafn af minningum yfir heilt ár sem ég er að dekka, og áður en lengra er haldið vil ég vekja athygli á þessu þrennu ef leitast er eftir því… Hér má finna: Bestu og verstu myndir ársins Ofmetnustu/vanmetnu myndirnar Senur ársins Þá er það komið á…
-
Hæ, ég heiti Tommi og ég fæ ekkert út úr því að horfa á íþróttir … Við erum öll bara samansafn af því sem við höfum upplifað, lært, gert, feilað á og notið, ekki satt? (þetta er tekið úr Trance, btw). Hvernig ég persónulega upplifi þá tilfinningu að sitja yfir fótboltaleik (svo eitthvað sé nefnt)…
-
Þetta er pínu ósanngjarnt. Því meira sem maður eldist, því meira gefandi þykir það að horfa á flestar myndir sem hafa eitthvað vitsmunalegt að segja manni. Mótvægið er aftur á móti það að kröfurnar aukast og þolið þynnist þegar kemur að stóra afþreyingarbíóinu, einna helst ofurhetjumyndum, nema sé að ræða almennileg efnistök. Alltof oft vildi…
-
Það eru þrír hlutir í heiminum sem ég er sérstaklega væminn fyrir (köllum það persónulegt „soft spot“). Í þriðja sæti er það Love Actually á Þorláksmessu, í öðru er það feiti stubburinn úr Hook sem saknar mömmu sinnar, og því fyrsta er það sumargjöfin sem barst mér sumarið sem bíónördarnir tengja vanalega við The Avengers, Moonrise…
-
Seint mun ég gleyma þessu. Mann grunar aldrei að þessir litlu hversdagslegu hlutir geti staðið svona sterkt upp úr í minningunni og í þessu tilfelli er ég að tala um eitthvað sem er einfaldlega svo óeftirminnilega hversdagslegt að langtímaminning hefði aldrei átt að vera í spilunum fyrir það fyrsta. „Two missed calls!“ er það sem…
-
Stundum sakna ég þess hvernig maður horfði á bíómyndir og sjónvarp í æsku og mig langar helst endilega að fá þessa tilfinningu aftur þar sem atburðir voru ekki senur og leikarar ekki leikarar, heldur persónur. Mikið djöfull getur nefnilega þetta saklausa barnsauga verið dásamlegt því þar er samstundis keypt það sem það sér og koma…
-
Fólk kvartar stanslaust undan masi og tillitsleysi annars fólks í bíó, og af hverju ekki? Þetta er réttlæt kvörtun því þessar uppákomur virka alltaf eins og þeim fari fjölgandi með árunum (sennilega eykst athyglisbresturinn bara með tækniþróuninni). Í augum kvikmyndaáhugamannsins er fátt meira óþolandi en einhverjir aðrir bíógestir sem draga þig andlega út úr góðri…
-
Síðasta vika barði gjörsamlega vitið og kurteisistárin úr mér þann 19. ágúst þegar (Hollywood-) heimurinn missti enn einn listamanninn á brútal máta, sem sýnir það að hægt er að vera kallaður listamaður þrátt fyrir að starfa nær eingöngu í spennumyndageiranum. Tony Scott var algjör stjarna á meðal þeirra sem þekktu til hans en svona almennt…
-
Í langan tíma taldi ég að spennumyndin The Musketeer (frá 2001) með Justin Chambers væri það hlægilegasta og sársaukafyllsta sem hafði snert blaðsíður eftir Alexandre Dumas.
-
Þegar menn detta í það að segja sögur af fjölskyldum sínum getur maður einstaka sinnum átt það til að dotta aðeins, enda er fátt sem maður hefur ekki heyrt af áður. Hins vegar fíla ég lúmskt að segja sögur af minni familíu, og ekki síst syskinum mínum, því það feilar aldrei að fólk fær bara…
-
Munið eftir þeim frábæra Friends-þætti í seríu fjögur þar sem Chandler og Joey voru allt í einu komnir með frían aðgang að klámstöð? Engin spes ástæða. Það bara gerðist! Þeir brostu allan hringinn fyrstu klukkutímana og voru háðir þessu, eins og myndi gerast fyrir flesta karlmenn (þó kannski ekki í hópum – það er bara…
-
Af einskærri forvitni ruslaðist ég á indverska kvikmyndahátíð hjá Bíó Paradís fyrr á þessu ári og greip þar nokkrar myndir, svona til að vera meira menningarlega opinn. Ég tel mig vera prýðilega skólaðan í asískum, evrópskum og ekki síst amerískum myndum, en ég hef ekki mikla reynslu af indverskum og satt að segja er ég…
-
Alveg sama hversu fyrirsjáanleg niðurstaðan er í langflestum tilfellum (segjum svona níutíu prósentum að meðaltali), þá spennist maður alltaf örlítið upp eins og það gæti komið þessi örlitla, örlagaríka sekúnda þar sem innihald umslagsins sem opnað er á sviðinu gæti komið manni á óvart. Óskarinn gengur vissulega meira út á glamúrinn en sjokkgildið og þess…
-
Ég er borgarbarn og hef alltaf verið. Ég var þessi krakki sem kíkti aldrei mikið út í íslensku sveitina og það segir sig nokkurn veginn sjálft að ég var þessi týpíski innipúki sem stóð og horfði á kindur og hesta með dómharðan svip og hugsaði: „Ókei, og hvað gerir þetta svo?“ Mér finnst það vera…
-
Einu sinni fór ég í bíó með amerískum frænda mínum. Mig minnir að myndin sem við sáum hafi byrjað rosalega vel, stemningin góð og svona, og svo fékk sessunautur minn vægt panikk þegar hin stórskemmtilega ræma stoppaði skyndilega. Ljósin kviknuðu og yfirgnæfandi FM-tónlist hrökk samstundis í gang til þess að sjá til þess að þú…
-
Ókei, þessu þarf að svara í eitt skipti fyrir öll. Ég hef oft verið spurður að þessu, oft hugsað út í þetta og þar af leiðandi verð ég að koma þessu út úr mér vegna þess að ég er í prýðilegri aðstöðu til þess. Auk þess er spurningin ekkert óviðeigandi. Íslend er mikil bíóþjóð, sérstaklega…




