Fleiri borðspilsfarsa, takk!

Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan ‘whodunit’ leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum!

Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og ’80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Upphaflega gefið út undir nafninu ‘Cluedo’.

En vissir þú að nafnið Cluedo væri samblanda af Clue+Ludo? og að það hafi alltaf verið upprunalegt nafn spilsins en breytt fyrir amerískan markað? Og eigum við að ræða hvað frammistaðan og hlaupagangurinn hjá Tim Curry* í þessari mynd er mikil frussandi snilld?!

Íris, Tommi og Auður Svavars eru sest við matarborðið til að finna út hvernig í ósköpunum þessi mynd fúnkerar svona vel og hvað dræma aðsókn hennar á sínum tíma hefur rænt frá okkur heilu flóruna sem við hefðum getað fengið af flippuðum borðspilsförsum.

En… Upp með vopnin og í gang með fókusinn. Nú þarf að leysa eina galna ráðgátu…

*Og hvíl í friði, elsku Tim! Bíófíklar eru þér ómælanlega þakklátir fyrir allar yfirdrifnu minningarnar og ekki síst hláturinn.

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading