Nú leggjumst við saman í epískt ferðalag.

Stærsta, furðulegasta og sennilega drungalegasta kvikmyndin til þessa frá Íslandsvininum Christopher Nolan, sem enn eina ferðina lætur reyna á nýja vöðva og vinkla. Hér hefur ofurþjarkurinn snúið sér að Ódysseifskviðu Hómers þar sem öllu er allsvakalega tjaldað til og erfitt er að þverneita fyrir umfangið. Peningurinn sést svo sannarlega á skjánum, bæði í leikmyndum og leikaravali. 

Þrátt fyrir hið undarlegasta bakslag hjá ýmsum ‘virkum í athugasemdum’ (sem fjallað verður nánar um í þættinum…) þá hefur The Odyssey verið að fá glimrandi lof um allan heim. Sumir hafa jafnvel gerst svo djarfir að kalla þetta bestu mynd Nolans til þessa, en Bíófíklar hefja sínar ástríðufullu umræðu um hvernig tókst til með þennan gígantíska pakka. Hlustandi skal allavega ekki búast við einróma hljómi og áliti í þessari samantekt.

Við gestamíkrafónana sitja nú fastagestirnir Páll Eyjólfsson (Nolan-fræðingur með meiru) og Viktor Árni Júlíusson, sem fékk þann heiður í fyrrasumar að vera staddur á tökustað myndarinnar. Viktor leysir frá skjóðunni innan leyfilegra marka NDA-samninga og kemur með skrautlegar sögur af settinu.

Upp með hjálmana, út með sverðin og úr bátunum með alla, því nú leggjumst við saman í epískt ferðalag.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading