Á Neeson einhvern séns í Nielsen?

Liam Neeson hefur tekið við keflinu af hinum óborganlega Leslie Nielsen sem burðarleikari ‘Beint á ská’ seríunnar. Nú er það Frank Drebin Jr. sem fær að leika lausum hala í endurræsingu sem bæði mætti kalla óvænta og í senn boðbera um endurkomu svokallaðra ‘spoof’ mynda af gamla skólanum.

Viktor Árni Júlíusson er mættur til að ræða The Naked Gun ‘25 við okkur Kjartan og Atla Frey, en hver þeirra fjórmenninga á sér ólík tengsl við þessa vinsælu sprellsyrpu.

Dómarnir virðast allavega hafa verið merkilega jákvæðir, en hvað segja bíófíklar? … Á Neeson einhvern séns í Nielsen? Hvers vegna eru nöfn þeirra svona svipuð? Hvernig gengur Pamelu Anderson að feta í fótspor Priscillu Presley?

Svörin liggja í hlustuninni. Varað verður (…ish) við spoilerum.

…Má þess einnig geta að Viktor er vægast sagt ósammála bíófíklum um eina tiltekna sumarmynd…

Flokkar:

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading