Margt hefur breyst síðan Scary Movie leit fyrst dagsins ljós fyrir 26 árum, bæði út frá þróun hryllingsmynda og í hversdagsheiminum almennt. Serían hefur flakkað á milli alls konar ólíkra húmorista og lagðist í góðan dvala eftir misheppnuðu fimmtu myndina frá árinu 2013. Nú eru Wayans-bræður mættir aftur ásamt fleirum úr gamla teyminu, með það að markmiði að hrista duglega í smekklegheitum, velsæmismörkum og hryllingsmyndaformúlum. Hvort húmorinn allur gangi upp er algjört smekksatriði. En smekksatriði sem er þess virði að greina.
Við Kjartan og Atli Freyr ræddu þessa sjöttu mynd með góðvini hlaðvarpsins, Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Hingað til hefur Arnór ekki leynt ást sína á fyrri myndum seríunnar og fór hann bjartsýnn á þá nýjustu.
Til að koma beint að efninu er öruggt að segja að skoðanir bíófíkla og gests séu misjafnar á endurkomu Wayans-bræðra í þessa syrpu. Er þetta kannski bara mynd þar sem best er að slökkva á heilanum til að geta öskurhlegið yfir ruglinu eins og óður bavíani? Eru brandararnir mögulega orðnir þreyttir og örvæntingafullir? Hversu mikið er að marka fáeina spretti sem ganga upp?
Svörin fást öll í kostulegu hlustuninni, og eldmóði Arnórs.



Leave a Reply