Svavar Máni Geislason brunaði beinustu leið frá Akureyri til að skella sér í stúdíó Podcast-stöðvarinnar til að setjast niður með Bíófíklum, enda mikill slíkur sjálfur að eigin sögn.
Þegar upp kom spurningin um umfjöllunarefni þá varð vissulega svonefndur ‘kósí-þáttur’ fyrir valinu; kósí fyrir þáttastjórnendur, krefjandi fyrir gestinn. Eins og það á að vera…
Smekkur Svavars fer yfir víðan völl og leiðir hann okkur Kjartan í gegnum sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir, með viðeigandi sem og furðulegum útúrdúrum annað slagið. Þess að auki myndast merkilega skondnar umræður um vægi og gildi Óskarsverðlauna.







































































































































































































