Þá skal halda áfram með spurningaleikinn þar sem fást engin ‘rétt’ svör og stigin skipta nákvæmlega engu máli. Á meðal pælinga er skoðað hver er versta Stjörnustríðsmyndin til að sýna einhverjum í fyrsta sinn, hvaða Bond-mynd ætti aldrei að vera fyrst fyrir valinu og hver eru stærstu feilsporin hjá virtum leikstjórum.
Við bjóðum kvikmyndaáhugamanninum Þorstein Valdimarsson hjartanlegaa velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem markmiðið er að kynnast smekk Þorsteins örlítið betur í gegnum gallsúrar en (vitaskuld) há-nördalegar spurningar.
Hlustandi er að sjálfsögðu hvattur til að hlera þetta húllumhæ þar sem aldrei er of langt í algjöra steypu.







































































































































































































