Star Wars hefur í áratugaraðir reynst sumum mikill gleðigjafi en hafsjór af triggerum fyrir aðra hópa. Þetta þykir furðu áhugavert í ljósi þess hversu títt þessar bíómyndir predika uppbyggjandi móral og stuðla að von, sameiningu og bjartsýni gegn myrkari mynstrum. Mætti jafnvel færa rök fyrir að Star Wars ‘aðdáendur’ séu á meðal reiðustu hópa veraldarvefsins, kaldhæðnislega.
Við Kjartan og gestur okkar, Einar Michaelsson, ræðum tvær umdeildustu ‘Disney Star Wars’ myndirnar í seríunni; almennt umtal þeirra, legasíu á meðal aðdáenda/markhópsins, sitthvora kosti þeirra og galla. Tilangur umræðunnar er að komast aðeins til botns á því hvers vegna svona mikið úlfúð hefur fylgt þessum tilteknu myndum og hvað þær segja í sameiningu um svokallaða Sequel-þríleikinn sem hófst með aðsóknarsprengjunni The Force Awakens.
Þá skal bara kveikja á geislasverðunum og kanna hvað liggur á bak við nöldrið sem oft hefur einkennt Star Wars vörumerkið, og um leið hlusta hvort nákvæmlega sú krufning leiði til (en ekki hvað…) nöldurs!



Leave a Reply