Við Íris og Emma Lilja höldum áfram að gramsa, týna og tapa okkur í Twilight-seríunni með ypptar axlir en í senn áhuga á skilningi fyrir jákvæðari punktum sagnabálksins. Eða í það minnsta kosti hvað það er og hvernig sem ‘Twihards’ tengja sig við svaðilför Bellu auk Edwards og Jacobs.
Með New Moon hefst formlega þessi liðaskipting á milli vampírunnar og varúlfsins. Segir það kannski margt um manninn eða einstaklinginn, veltandi á því hvort umræddur sé ‘Team Edward’ eða ‘Team Jacob’?
Hvað með ‘Team Bella?’
Eða Charlie?
Eða Aro?








































































































































































































