Engin verðlauna- eða hágæðamynd, en hún heldur manni í góðu skapi.

Að horfa á The Boat that Rocked er eins og að vera staddur í stjörnupartýi í retró-stíl þar sem geggjuð tónlist er allan tímann í spilun og fílingurinn ávallt hress. Myndina skortir svosem krúttleikann og hlýjuna sem Richard Curtis stillti upp svo prýðilega í Love Actually (mynd sem undirritaður getur alltaf horft á) en hún svínvirkar engu að síður sem lúmskt fyndin – þótt kannski örlítið of löng – gamanmynd sem fer nánast algjörlega eftir eigin uppskriftum.

Curtis kann að fara vel með góða leikara, sem þessi mynd hefur svo sannarlega nóg af og er hiklaust borin uppi af þeim andlitum sem prýðir ræmuna út í gegn. Handritið þyrfti að vera hreinasta viðurstyggð fyrir svona traustan og hæfileikaríkan hóp af breskum mönnum, ásamt einum besta bandaríska leikara sinnar kynslóðar, til að feila eitthvað en þeir halda allir upp mjög góðum takti og dúndurskemmtilegri nærveru.

Það er eitthvað svo mikil dásemd að horfa á Bill Nighy, Philip Seymour Hoffman, Rhys Ifans og Nick Frost (sem verður alltaf þekktur sem Mike úr Spaced í mínum huga) leika lausum hala í tvo tíma. Ekki heldur hef ég neitt neikvætt að segja um lítt þekktari fagfólk á borð við Rhys Darby (munið eftir ágenga stjóranum úr Yes Man? Sami gaur), Tom Wisdom, Tom Sturridge, Katherine Parkinson (Jen í The IT Crowd) og Chris O’Dowd (Roy í The IT Crowd). Jack Davenport er líka skemmtilega óhress og glætan að ég fari að gleyma Kenneth Branagh, sem stendur sig að sjálfsögðu vel og fær margar frábærar línur, en almennt gerir hann ósköp lítið og því verður maður að setja stórt spurningarmerki við hann.

Það sem kom mér á óvart meðan ég horfði á þessa mynd var það hversu ómerkilegar og í mörgum tilfellum óviðkunnanlegar persónurnar voru um borð í Radio Rock bátnum, sem nánast öll myndin gerist á. Það áhugaverða við það, hins vegar, var að eftir að hafa eytt rúma tveimur tímum með þessu pakki fóru þeir hér um bil allir að vaxa á mig og þegar kreditlistinn í lokin var kominn upp var mér vel farið að líka við hvern einasta aðila þarna. Það er eitt af mörgum dæmum sem sýnir hvað Curtis getur verið lúmskur með handrit sín, svo ég tali auðvitað ekki um hvað margar senur í þessari mynd eru fáránlega fyndnar. Húmorinn kemur samt meira upp úr samskiptum persónanna heldur en að vera skrifaður með stökum samhengislausum bröndurum.

Annars gengur myndin rétt tæplega yfir það að vera lengri en hún þurfti að vera. Ég sæi minni ástæðu til þess að kvarta undan lengdinni ef myndin hefði sett örlítið meiri fókus á sumar persónurnar, því eins og má sjá, þá eru þær nokkuð margar og fá mismikla athygli á skjánum. Kenneth Branagh er gott dæmi um persónu sem fær ekki rassgat að gera út alla myndina. Hann er þarna því handritið þarf á skíthæl að halda, en senurnar með honum gera ósköp lítið annað en að fara í hringi og endurtaka sömu línurnar aftur og aftur um hversu vond og svívirðileg popp- og rokktónlistin er. Persónusköpun hans er líka öll í lausu lofti. Hann bara hverfur rétt undir lokin og fær maður ekkert að vita af hverju maðurinn var svona leiðinlegur og bitur karakter.

Í hvert sinn sem myndin dregur athyglina frá bátnum, þá dalar hún, sama hversu góða leikara er um að ræða. Eina undantekningin er jólaboðið sem Brangah heldur. Klassískt! Svo þegar athyglin beinist aftur á bátinn, þá er fílingurinn allt annar. Ég væri einnig að guðlast ef ég myndi ekki eitthvað minnast á þetta blessaða soundtrack sem heyrist út alla myndina, en tónlistin út í gegn er ÆÐISLEG. Hún passar fullkomlega við sumar senurnar og bara almennt séð kemur hún manni í betra skap og setur skemmtilegan og léttan tón á myndina. Meira að segja í alvarlegustu senunum er aldrei langt í grípandi lag eða góðan húmor, og það tel ég vera helvíti gott.

The Boat that Rocked er í engri merkingu verðlauna- eða hágæðamynd, en hún heldur manni í góðu skapi og miðað við það sem myndin er að segja manni þá skiptir það mjög miklu. Ég myndi ekki láta mig dreyma um það að setja hana á sama gæðastall og Love Actually, en það þýðir ekki að hún verðskuldi ekki fínustu meðmæli þrátt fyrir það.

Sjáðu hana ef þú ert músík-dýrkandi (og erum við það ekki flest?). Það er borgaraleg og menningarleg skylda…

Flokkar:

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading