Category: Rómantísk
-
Hún kemur skilaboðunum sterkt og ánægjulega til skila en mátti skipta betur út rjómalagaðri einlægni fyrir meira brútal hreinskilni.
-
Metin sem sjónræn og pökkuð hasarsteypa er kannski hægt að finna „guilty pleasure“ gildi í Jupiter Ascending, en það gæti reynst manni ofviða.
-
Það þýðir ekkert að reyna að meðtaka myndina sem neitt annað en frásagnardrifna sketsamynd.
-
Enn ein myndin þar sem Sandler hefur ákveðið að skutlast í langt frí og gera bíómynd á meðan.
-
Kannski eru seinustu þrjátíu mínúturnar betri ef maður sér ekki allt sem er að gerast fyrir tárarennslinu og móðunni í sjóninni sökum gráturs.
-
Skemmtileg en þvæld. Orkurík en hallærisleg, og MIKIL Sony-mynd.
-
Gegn öllum náttúrulögmálum er Her ein af betri ástarsögum sem hafa komið út í mörg ár; ljúfsár, sérvitur, fyndin og elskulega lítil.
-
Flippið kætir stundum og ræður öllu í sögu sem hefði mátt daðra við dekkri skugga líka. Tilfinningavigtin er hvergi finnanleg.
-
Tilfinningarverur sem taka með opnu hugarfari á móti raunveruleikanum á hvíta tjaldinu ættu að kunna að meta hana, ekki síst þeir sem halda mikið upp á kvikmyndir sem breyta áhorfendum í flugu á vegg.
-
Ánægjulega beitt, fyndin, skemmtileg og hreinskilin mynd.
-
Fullkominn endir á magnaðan örþríleik.
-
Einföld uppsetning, flókið handrit undir yfirborðinu en ofsalega náin og frábærlega hreinskilin mynd yfir heildina.
-
Ég gef þessu hálft ár. Þá verða allir löngu búnir að gleyma þessari mynd.
-
Hallærisleg á pörtum en ekki nógu mikið til þess að hægt sé að sitja og gera grín að myndinni allan tímann.
-
Annaðhvort er klippari Apatows of meðvirkur, eða maðurinn er að missa það.
-
Það má gjarnan hrósa myndinni fyrir að vera drifin af sjúklega ferskri grunnhugmynd sem tekur kómískan vinkil á Romeo & Juliet.
-
90 mínútna grátur pg GÆSAHÚÐ…!
-
Sykurleðja og argasta krúttsprengja, en illskiljanlega gengur þessi pakki upp.
-
Það er vel sloppið að geta gert mynd eins og þessa fyrir minna en milljón dali og það er í sjálfu sér mesta afrek hennar,
-
Myndin fékk mig til að hlæja oftar en ég bjóst upphaflega við og greip þéttar utan um sálina en ég þorði að ímynda mér fyrir fram.
-
Skemmtileg, nútímaleg fantasía sem segir sannleikann beint út án þess að berja hann ofan í mann.























