Þessi frumlega, pönnusteikta og tilkomumikla ræma er byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum sem örfáir Íslendingar ættu að þekkja til.

Ekki láta gallsúra titilinn blekkja. Nirvanna The Band The Show The Movie er sprenghlægileg tímaflakkskómedía um tvo félaga sem setja líf sitt og dægurmenningu á annan endann.

Þeir Matt og Jay eiga þann langþráða draum að ná stórvinsældum með hljómsveit sinni, Nirvanna. Áætlanir þeirra um að fá gigg á skemmistaðnum Rivoli í Toronto hafa gengið hægt fyrir sig og þolinmæðin á þrotum. Þá breytast horfur skyndilega þegar Matt finnur upp á tímavél fyrir slysni og félagarnir eru óvart orðnir heimsins fyrstu tímaflakkarar. Ætli þeir hafi þá loksins fundið lykilinn að tilvonandi heimsfrægð eða enda verða hlutirnir mögulega enn verri?

Þessi frumlega, pönnusteikta og tilkomumikla ræma er byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum sem örfáir Íslendingar ættu að þekkja til. Á meðal þeirra Íslendinga eru Atli Sigurjónsson, sem mættur er í stúdíóið til okkar Kjartans ásamt Fannari Traustasyni, sem kom alveg kaldur að Nirvanna, en við upptöku þessa þáttar voru Bíófíklar nýbúnir að halda sérsýningu á myndinni í Smárabíói. 

Hefst þá hin alíslenska krufning á Hljómsveitinni Nirvanna og brengluðu ævintýrum þeirra. 

Myndin er rædd með spillum…

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading